MyndaalbúmGestabók

Apríl 2010

Þessi ungi maður plataði ömmu sína út undir því yfirskini að þar væri lítill hundur sem væri búinn að týna mömmu sinni. Hrópaði svo stolltur 1.apríl!
Þessi unga dama plataði frænku sína út með óskiljanlegum hætti og hrópaði ákveðin
Mikil gleði með að vera búin að endurheimta pabba sinn úr vikudvöl á Spáni.
Óliver var náttúrulega sérstaklega ánægður með gjafirnar sem keyptar voru í útlöndum :)
Bakaradrengurinn einbeittur
Bara hollusta á þessu heimili, döðlur og spelt :)
Elskar að fá að stjórna hrærivélinni
Ætli þetta sé algengur leikur hjá 4 og 5 ára strákum eða eru þessir bara svona vel upp aldir?
Óliver setti sig alveg í þjálfaragírinn og sagði Kristiani Óskari að stíga fram í hægri fót þegar hann slær :)
Sváfum í fyrsta sinn í sumarbústaðnum um páskana - þessi tvö voru dugleg að perla í sveitinni
Katla litla var með eyrnabólgu og þurfti svoldið mikið að vera með duddu og...
...láta lesa mikið fyrir sig.
Brjáluð amma að dúndra á dauðskelkað barnið í markinu á fótboltavellinum í sveitinni :)
Engar páskagreinar innanhúss þetta árið...
...heldur bara ákveðið að skreyta þær sem voru úti :)
Það þótti vel við hæfi að fyrsta kvöldmáltíðin í stóra húsinu væri hangikjöt
Afi og Óliver í bíló
Loksins mátti opna páskaeggin eftir nokkurra daga bið og síðan leit á páskadagsmorgun
Katla Sól borðaði nammið af miklum krafti en var ekkert að spá í að brjóta eggið og borða það (pabbi nýtti sér það!)
Ánægður nammigrís
Smiðirnir búnir að græja bílabraut
Nauðsynlegt að hafa eina slíka í hverjum sumarbústað
Pylsupartý í sveitinni á meðan beðið var eftir páskalambinu
Kíkirinn hans afa er mjög spennandi
Allir verða að fá að prófa þetta skemmtilega tól
Amma að koma öllu fyrir í fína eldhúsinu í sumarbústaðnum
Páskaeyrnabólgan litla kvartaði lítið þrátt fyrir bólgnar hljóðhimnur
Dugleg að perla
Billar að gera þrautir á annan í páskum
Katla Sól og Amma San á góðu spjalli
Fyrsta tilraun til að leyfa systkinunum að sofa í sama herbergi gekk ekki alveg - Reynum aftur síðar :)
Fjölskyldan skellti sér öll saman í bíó í fyrsta skipti 10.apríl
Að sjálfsögðu fengu allir popp...
...og nóg af því :)
Irena að lesa fyrir svefninn - Pabbarnir þurftu aðeins að klára að horfa á leik áður en haldið var heim á leið ;)
Tvö fersk að borða pönnukökur í morgunmat á Sumardaginn fyrsta :)
Litli dekursnúðurinn kominn á alvöru hjól
Mjög sáttur og...
...stoltur :)
Hvað passar betur en að moka á Sumardaginn fyrsta? Ekkert!
Afi átti þennan fína fána í bílskúrnum sem passaði svo vel á nýja hjólið
Flottir hjólakrakkar
Tilbúin í rólóferð
Katla Sól með nýjan og fínan hjálm
Óliver Bill með sinn gamla góða
Eru komin jól í apríl?
Nei, bara afi og amma í Mosó að kaupa fínt og nýtt dót handa litlu ormunum sínum
Óliver bíður spenntur eftir að Harpa frænka sé búin að opna fína dótið :)
Þegar það eru ekki til tvær jógúrtdós í ísskápnum verður bara að drekka saman úr einni.
Sólgleraugnatöffarar á leið í sveitina með ömmu og afa.
Þær gerast ekki mikið flottari píurnar; veski, sólgleraugu, buff og derhúfa yfir :)