MyndaalbúmGestabók

Maí 2009

Byrjuð í koppaæfingum
Feðgarnir að lesa saman fyrir svefninn
Litlu snúðarnir að horfa saman á morgunsjónvarpið
Óliver Bill er duglegur í heimilisstörfunum
Katla Sól að róta í skúffunum
Fann þessi voða fínu hálsmen sem hún fékk í skírnargjöf
Voða fín með gullin sín :)
Stolti stóribróðirinn alltaf eitthvað að knúsast í litlu sinni
Gaman að vera saman :)
Tveir uppteknir
Fyrsta leirið gekk vel hjá Kötlu Sól - smakkaði bara einu sinni!
Systkinin eru mikið að veltast um gólf í einhverskonar gannislag eða jafnvel glímu þessa dagana og finnst það æði!
Katla Sól er dugleg að herma eftir ýmsum dýrategunum
Hún var að fá þennan fína hund og krúttlega hænu sem gaman er að leika með
Óliver Bill hefur mjög gaman af að púsla
Svoldið erfitt þetta nýja risaeðlupúsl sem hann var að fá
Honum tókst samt eftir miklar pælingar að púsla það alveg sjálfur og fagnaði ákaft eins og sannur sigurvegari :)
Systkinin mætt í vikulega miðvikudagsheimsókn í Langagerðið (m&p bæði að þjálfa á sama tíma)
Adda frænka snillingur tekur alltaf vel á móti liðinu
Það er gaman að moldvarpast í garðinum hjá ömmu
Óliver finnst gaman að leika með spýtur í garðinum
Angalangur kíkir alltaf út þegar einhverjir eru í garðinum
Angi er ótrúlega þolinmóður gagnvart forvitnum börnum
Spennandi að láta Angalang elta strá og greinar
Katla Sól fylgist með úr fjarlægð
Brjálað stuð í eltingaleik með kisu
Katla Sól orðin frísk eftir lungnabólguna og elskar að vera úti í garði
Stafaumræða í baðinu - K eins og Katla segir Óliver stoltur
Katla Sól með stórt mar á enninu eftir smá árekstur við gluggakistu í leikskólanum
Fjölskyldan komin í Húsdýra- og Fjölskyldugarðinn
Kötlu Sól leist vel á refina
Pabbi og Katla að skoða dýrin
Óliver Bill ánægður í Hús&Fjöl
Alltaf skemmtilegast að sjá selunum gefið
Snorri og félagar eru sko duglegir að borða fiskinn
Katla Sól var mjög spennt fyrir hestunum
Sú stutta vildi bara spjalla endalaust við þennan fína hest meðan stóri bróðir hélt sig í hæfilegri fjarlægð
Hestarnir í Húsdýragarðinum eru fínir og mikið til í að spjalla
Pabbi og ormarnir komnir í lestina sem er alltaf vinsælust í Hús&Fjöl
Þessir fínu bílar eru skemmtilegir
Katla litla mjög sátt við bílana
Blái bílinn var hraðskreiðastur og skemmtilegastur :)
Frábær leiktæki í Hús&Fjöl
Geggjuð rennibraut :)
...og önnur rennibraut...
...og endalaust stuð í Hús&Fjöl :)
Óliver Bill bakaði græna köku og bauð nokkrum frænkum í kaffi
Óliver Bill og Agnes frænka eru góðir vinir
Katla Sól og frænkurnar Eyvör og Ragnhildur í fínu kjólunum sem amma í Langagerði prjónaði
Algjörar dúllur í fínu kjólunum
Prakkarafrænkur að gretta sig í myndavélina :)
Allir komnir út að leika í góða veðrinu - tvíburasysturnar flottar með nýjar brosandi húfur
Systurnar ekki alveg sammála um hver megi sitja í vörubílnum
Óliver Bill duglegur að aðstoða systu og frænku á þríhjólinu
Pabbi keypti þetta fína buff handa Óliver í útlöndum
Mjög sáttur með buffið eftir að hafa hugsað málið í nokkra daga :)
Vinirnir Katla Sól og afi skafi
Amma í Mosó prjónaði þessa flottu peysu handa Kötlu Sól
Aðeins verið að máta nýju peysuna fyrir svefninn
Óliver Bill fylgdist spenntur með Jóhönnu Guðrúnu í undankeppni Eurovison
Adda frænka og afi voru mjög einbeitt og dáldið stressuð
Sáttu með okkar konu og söng með henni allan tíman :)
Katla Sól búin að grípa enn eina pestina
Í þetta skiptið var það slæm barkabólga og pían því komin á steratöflur og nýjan sýklalyfjaskammt
Slær ekki slöku við í æfingum þrátt fyrir veikindin :)
Fékk að prufa perlurnar hans brósa
Kötlu Sól finnst gaman að dunda sér við perlunar
Katla Sól er alltaf til í að borða brauð og helst troða svoldið upp í munninn
Bókaormurinn að lesa um Gullbrá og birnina þrjá
Alltaf á leiðinni út
Stoltur stóribróðir að leiða systir sína heim að dyrum
Óliver finnst sko ekki leiðinlegt þegar Katla Sól vill ekki leiða mömmu heldur bara stóra bróðir
Sól og blíða - litli veikindapésinn stalst út í sandinn með brósa
ahhhh.... yndislegt að komast út í grasið :)
Útikaffi í garðinum hjá ömmu og afa
Komin í sveitina með ömmu og afa
Katla Sól spennt fyrir að komast í kaffi
Óliver Bill kominn í bíló á sínum uppáhalds stað í sveitinni
Litla systir vill gera allt eins og stóri bróðir
Dugleg í bíló á borðinu vinsæla
Úti í móa
Ríkur afi
Stuð að hoppa í afa og ömmu rúmi
Hún er alltaf hress og kátt litla pían
Mæðgurnar mættar í kartöflugarðinn
Mömmur
Allt á fullu
Ormarnir fengu að skoða gröfuna hans afa
Gaman í gröfunni
Óliver fékk að keyra gröfuna með afa
Gaman saman í Beltasóley
Fengu fara hjá ömmu í hjólbörunni
Brúin yfir litla lækinn hefur mikið aðdráttarafl
Það fer vel um liðið í afabíl
Rólóbörnin að renna
Óliver Bill gæti búið á rólóvelli
Sérstaklega þegar veðrið er svona gott
Alltaf verið að leika með sápukúlur á pallinum í góða veðrinu
Katla Sól mundar sópinn
Brjálað að gera í garðinum
Börnin komin í heimsókn til ömmu og afa í Mosó
Fundu þennan risa stóra jeppa á röltinu með afa
Afasundið heillar ungviðið
Auðvitað var komið við á róló í göngutúrnum
Fylgist heillaður með hetjunni sinni
Jóhanna Guðrún er bara flottust þessa dagana
Pabbi kominn heim frá útlöndum með skemmtilegt dót
Leiftur McQueen sólgleraugu og flugvél var alveg að slá í gegn hjá Óliver
Katla flott með nýja sólhattinn og sólgleraugun
Sólgleraugnatöffarinn
Stelpur í partý
Strákar í partý
Mömmur og pabbar spila á meðan :)
Katla Sól mætt á Íslandsmótið í bandý!
Kannski búin að finna sína íþróttagrein?
Laugardagsnammið
Söngfuglinn
Alltaf að syngja og vill helst hafa það einsöng!
Ennþá kvef í litlu píunni og pínu væl með því
Brjálað að gera hjá afa og stóru börnunum hans við grillin á pallinum
Auður og Sigga mættar í grillpartý
Frænkurnar fylgjast með grillurunum
Sætar píur
Frændsystkinin fín og flott í sólinni
Amma San og Katla Sól á spjalli yfir kræsingunum
Feðgarnir að horfa á boltann og frænkurnar í bíló
Auður ánægð með fjólubláa bílinn
Hildur og Óliver skemmtu sér vel við að leira
Auður í sólgleraugnaleik með afa
Stuð að syngja
Katla Sól var mjög ánægð með strætóferð í Langagerðið og til baka
Lífið er stundum ósanngjarnt!
Það jafnar sig nú fljótt þegar maður kemst í gott dót
Sofnaði með kókópuffsið í fanginu á leið í sveitina (bara kókópuffs í ferðalögum og þegar einhver á afmæli!)
Afi og ormarnir að lita í sumarbústaðnum
Amma alltaf að elda eitthvað gott handa okkur
Birta frænka í sveitinni
Óliver Bill í sveitinni
Mamma og pabbi líka
Birta að máta peysuna hennar múttu
Óliver Bill að gera tilraun til að fela sig fyrir myndavélinni
Afi, Birta og Óliver Bill að fylgjast með einhverju mjög spennandi
Það var nýi kofinn hennar Ísoldar nágranna sem vakti svona mikla athygli
Tolla frænka og Katla Sól eru miklar vinkonur
Stuð í pottinum
Ennþá meira stuð að vakna í sjaldséð kókópuffs!
Stiginn í bústaðnum var mjög vinsæll enda bannað að vera í honum :)
Katla Sól að máta húfuna hans Juan
Birta og Óliver Bill að líma í límmiðabók
Katla Sól reyndi að aðstoða
Voða góðir vinir - Birta og Óliver Bill
Kíktum í Kiðjaberg til Dóra og co. - Katla Sól og Ásdís voru góðar saman