MyndaalbúmGestabók

Apríl 2009

Katla litla með ógeðslega magapest þessa dagana
Þreyttir ormar sofnaðir í mömmu fangi yfir sjónvarpinu
Katla Sól vill ólm komast uppí alla stóla sem finnast
Reynir stundum að standa í þeim líka!
Borðstofustólarnir eru mjög vinsælir og...
...og grænu stólarnir hans Ólivers líka :)
Systurnar (Frænka og amma) komnar með allt liðið sitt í helgarferð til Hveragerðis
Óliver var dekraður af Frænku og fékk Kókópuffs þegar hann vildi :)
Amma með Ásdísi Dóradóttur sem er nýjasta frænkan okkar
Liðið á leið á róló í Hveró
Eyvör og Ragnhildur í flottri kerru
Óliver Bill að renna með Eyvöru frænku (Katla Sól var veik heima og missti af fjörinu)
Valgerður með Ragnhildi í rennibrautinni
Gunnhildur og Agnes renndu að sjálfsögðu líka
Óliver kominn í sama magavíruspakka og Katla Sól - alltaf með fötuna sér við hlið
Katla alveg að verða frísk eftir 6 daga heima í veikindum
Óliver Bill ánægður með frostpinna í kvöldmat!
Afi Billi hressti Óliver við í veikindunum með flottum bíl
Amma Sirrí prjónaði þessa fínu peysu á Kötlu og kom færandi hendi með útidót fyrir sumarið
Litla húsmóðirin að tína þvottinn af ofninum
Katla Sól horfir heilluð á stóra bróðir
Katla Sól í hettukjól
Páskaskrautið hennar ömmu er heillandi
Óliver Bill loksins farinn að kíkja út eftir magapestina
Gaman að moka hjá ömmu og afa
Útistelpan
Hjá ömmu og afa í vöfflum í Svínadal
Katla Sól og afi eru miklir vinir
Gaman úti í góðu veðri með Halldóri nágranna
Brjálað að gera í mokstri á pallinum
Óliver Bill kominn í langþráða heimsókn til Kristians Óskars
Bræðurnir góðir að passa systurnar sínar
Pabbi og Katla Sól í Bláfjöllum á páskadag
Svoldið súr eftir veltu í brekkunni
Mamma og Katla Sól ánægðar í snjónum
Adda frænka kom með okkur í fjallið
Gaman saman á sleða
Sleðakeppni fjölskyldunnar
Mamma, Óliver, pabbi og Katla Sól
Bara stuð að geta verið úti að leika í góðu veðri fram á kvöld
Katla Sól komin í feitt
Krítarnar kannaðar með öllum skynfærum
Óliver að teikna mikið listaverk í garðinum
Katla Sól meira í því að fylgjast með hinum kríta
Fullt af fínum stelpum í pizzupartýi hjá okkur
Allt gengið að baka súkkulaðiköku í eftirrétt
Katla Sól ánægð með afraksturinn :)
Litlu snúðarnir að horfa á morgunsjónvarpið
Óliver Bill passar vel uppá litlu systir sína
Stubbaknús :)
Litla pían aftur búin að grípa pest og þá er best að sofa í kuðung í mömmu bóli
Sumarið komið og Óliver Bill fékk hlaupahjól og hjálm í sumargjöf
Kötlu litlu var bara skellt á þríhjólið hans Ólivers sem hann fékk fyrir tveimur árum
Óliver Bill á fleygi ferð á nýja hlaupahjólinu
Góður stóribróðir að keyra systir sína sem nær ekki ennþá niður á petalana á þríhjólinu
Stoltur hlaupahjólseigandi :)
Ormarnir hressir í morgunsárið
Katla Sól vill bara borða sjálf - alveg bannað að mata hana
Gengur bara mjög vel hjá þeirri stuttu
Óliver Bill elskar grænan lit þessa dagana og vill helst bara vera í grænu
Vill helst ekki fara úr þessum bol sem amma og afi gáfu honum í sumargjöf
Stuð á róló
Gaman í gulu húsi
Skemmtilegt að vega salt við mömmu sína
Alltaf á fleygi ferð á nýja hlaupahjólinu
Katla Sól loksins búin að fá greyningu á því sem hefur verið að valda veikindapakka vetrarins - slæm kinnholubólga og síðan lungnabólga í kjölfarið!
Hún er bara hress þrátt fyrir veikindapakkann og vill ólm tala í símann
Hrikalega mikið stuð þegar einhver er hinum megin við tólið :)
Mæðgurnar ánægðar með að litla snúllan sé að hressast