MyndaalbúmGestabók

Júní 2008

Katla Sól á leiðinni í Svínadalinn í fyrsta sinn
Huggulegt í sveitinni með Öddu frænku
Of mikið rok fyrir útikaffi að þessu sinni
Óliver ánægður með nesti dagsins :)
Afi og mamma að reyna að plata einn svoldið stúrinn eftir lúrinn í fótbolta
Afi, Óliver Bill og Adda frænka að fylgjast með einhverjum svaka góðum í fótbolta. Hver skildi það nú vera?
Auðvitað amma stuðbolti :)
Gaman saman í sveitinni
Mamma með ormana sína
Afi og Katla Sól að fylgjast með hinum í fótbolta
Gaman í sveitinni
Alltaf hægt að finna góðan stað fyrir bílaleik
Litli dekursnúðurinn og nammigrísinn fékk sleikjó á leiðinni heim
Halldór Daði og Óliver Bill að sópa og gera fínt í kringum blokkina okkar :)
Greyið gamla myndavélin hennar mömmu datt í gólfið og dó!
Hún neyddist því til að fá sér þessa nýju fínu :)
Pabbi lúkkar vel í nýju myndavélinni
Katla Sól líka
...og síðast en ekki síst Óliver Bill hressi og káti :)
Katla Sól farin að naga dót
Stundum svoldið erfitt að troða því uppí sig
Ekki hægt að segja annað en að pían braggist vel enda komin með þessa fínu undirhöku
Bara gaman að því :)
Pabbi og Katla Sól að leika sér
Gaman að standa og...
...spjalla við pabba sinn
Óliver Bill og Katla Sól að horfa á barnatímann uppi í rúmi
Bara huggulegt hjá systkinunum
Duddan er ómissandi fyrir Óliver þegar verið er að kúra :)
og ekki síður mikilvæg er mamma og hárið hennar :)
Katla Sól að prufa að sitja í stól í fyrsta skiptið hjá ömmu og afa í Mosó
Það gekk nú bara vel
Duglegur að kubba
Skemmtilegast að búa til turn úr öllum kubbunum hans afa
Harpa, Böddi og stelpurnar komu í pönnsur til okkar á laugardagsmorguninn
Óliver og Birta voru dugleg að borða pönnsur
Þau eru voða góðir vinir þessi tvö og þurfa mikið að spjalla
Mamma náði að stilla liðinu upp í myndatöku
Allir svo glaðir og fínir :)
Tanja og Birta voru svo góðar að lána Kötlu Sól þennan fína stól
Gott að eiga góðar frænkur
Rosa fínt að sitja í nýja stólnum
Litli bróðir hans Arons Birgis var skírður Viktor Snær á laugardaginn
Fanný, Ingibjörg og Halldór Andri í veislunni
Ingibjörn og Óliver Bill kubbuðu meðan aðrir gæddu sér á kræsingum
Mjög stoltir með afraksturinn :)
Ragnhildur og Eyvör komnar í heimsókn
...og Agnes stóra systir þeirra líka
Eyvör komin fjórar fínar tennur
Jóanna og Ragnhildur að spjalla við Kötlu Sól
ahh við frænku sína
Alltaf stuð á pallinum
Upptekin að horfa á Latabæ á meðan mömmur og pabbar spjalla
Lítill sofandi engill farinn að taka 8 tíma lúra á nóttinni mömmu til mikillar gleði :)
Smellti sér sjálf yfir á magan í fyrsta skipti 9.júní
Dáldið hissa og ekki að fatta hvernig á að losa hendina
Þetta var betra :)
Adda frænka og Óliver Bill að máta nýju húsgögnin á pallinum okkar
Adda snillingur sótti bæði Óliver á leikskólann í dag og skrúfaði saman garðborðið. Besti reddarinn!
Katla Sól dugleg að leika sér á gólfinu
Alltaf að skoða í kringum sig...
...og stilla sér upp fyrir myndatökur
Mamma beitir ýmsum ráðum til að komast út í sólina
Bara huggulegt að vera úti á palli þó að maður fái ekki að vera í sólinni
Svoldið spennt fyrir rósunum hennar mömmu
Getur horft á þær lengi lengi
Óliver Bill duglegur að hjálpa afa Billa...
...að vökva blómin
Amma Áslaug og Katla Sól að spjalla og leika
Hún amma Áslaug er sko eldhress 90 ára kona og ber aldurinn vel
Borðað á hlaupum
Gott að vera komin með húsgögn á pallinn þegar börnin neita að koma inn að borða
Pasta er eitt af fáum matartegundum sem Óliver Bill borðar með góðri list
Daníel Árni varð 2 ára á laugardaginn
Hann fór létt með að blása á kertið á þessari flottu Leiftur McQueen köku
Óliver Bill og Daníel Árni að gæða sér á grilluðum pylsum og djús í afmælinu
Eva, Krissi, Ingibjörn og Sara Ósk í góða veðrinu á laugardaginn
Það er ekki hægt annað en að vera glaður í svona góðu gardenpartý :)
Daníel Árni á allt fullt af Cars dóti. Fótboltinn var ansi vinsæll í garðinum.
Systkinin mætt með Öddu frænku niður á tjörn
Mamma að lesa Barbapabba fyrir ormana
Kötlu Sól finnst frábært að fá að vera með í lestrinum líka
Ljúfur hádegislúr á yndislegum rólegheitar sunnudegi
Þessi tvö voru svo heppin að vakna í ömmukoti á 17.júní :)
Komin með fána í hönd (og munn) strax í morgunsárið
Fín systkin í 17.júní sparifötunum
Stóri bróðir var nú ekki alveg viss hvort að hann ætti að leyfa litlu sinni að prófa fánann
Á Austurvelli með ömmu sinni og búinn að fá þessa fínu Bubba blöðru
Hittum Dóra, Hildi, Valgerði og Gunnhildi í bænum
Katla Sól glöð og ánægð í 17.júní kjólnum
Óliver Bill og afi að reyna að gera við gömlu myndavélina hennar mömmu
17.júní tertan :)
Góðir grannar, Ása og Einar, mætt í kaffi
Amma í góða veðrinu
Adda frænka alltaf til í að moka
Best í heimi :)
Alltaf að kanna heiminn með munninum :)
Kominn í sveitina til ömmu og afa
Amma alltaf á stuttbuxum og geðveikt öflug á skóflunni
Öflugir vinnumenn að búa til undirstöður fyrir stærri pall
Óliver Bill og Adda frænka að undirbúa kvöldmat fyrir duglegt vinnufólk
Amma og Óliver Bill að setja niður 19.júní tréð sem amma fékk í tilefni dagsins
Ánægður með verkið
Gott að vera í sveitinni því þá má vera skítugur upp fyrir haus
Félagarnir Óliver Bill og Kristian Óskar mættir í sumarbústað í Biskupstungum
Irena og Halla Stella að koma kræsingum helgarinnar í ísskápinn
Katla Sól alltaf í stuði á leikteppinu, líka í sveitinni
Yfir grillarinn farinn að undirbúa kjúlla kvöldsins
Halla Stella og Óliver Bill að leika úti á palli
Kristian Óskar líka
Það er sko gaman í leik með góðum félögum
Mamma og Óliver að blása sápukúlur í pottinum
Stuð hjá sundgörpunum
Superman og Íþróttaálfinum þótti ekki leiðinlegt að vakna saman og geta farið strax að leika
Spenntur að skoða dýrin í Slakka
Hvað er svona áhugavert?
Jú, steinsofandi litlir grísir :)
Katla Sól og pabbi að njóta góða veðursins í Dýragarðinum Slakka
Gaman að fá að halda á kisu
Kristian Óskar greynilega þaulvanur kisuhaldari
Feðgarnir að klappa litla góða kálfinum
Katla Sól alltaf jafn góð þó að múttan þvælist með hana á fundi o.fl. um allan bæ
Stóri bróðir góður að lesa fyrir litlu sína
Heppin að eiga svona góðan bróðir
Elskar að lesa bækur þessi kútur
Ekki leiðinlegt þegar litla systir er farin að hafa svona mikin áhuga á manni
Gott að sofa í hrúgu eftir góða sögustund :)
Eitt lítið leikteppi dugir skammt fyrir kraftmikla píu sem er alltaf á ferðinni