MyndaalbúmGestabók

27.mánuður

Mamma mín með stóru bumbuna og ég að knúsast. Mamma mín heitir reyndar Anna Lilja og ég neita að kalla hana neitt annað en það þessa dagana.
Hlaupabólan komin í heimsókn til okkar!
Bólur útum allan kroppinn
Hundleiðinlegt að hanga heima í marga marga daga útaf þessum bólum
Fékk þessa fínu derhúfu frá bankanum mínum
Sjálfur Íþróttálfurinn sem er í miklu uppáhaldi þessa dagana er á nýju húfunni
Elsku Áslaug mín var svo góð að koma og passa mig um helgina
Adda frænka er í algeru uppáhaldi enda alltaf svo dugleg að leika við mig
Ömmurnar mínar voru svo góðar að færa mér bollur til að létta lundina í inniverunni
Súkkulaðigrísinn ég slær ekki hendinni á móti svona kræsingum
Mamma mín var í TBR húsinu alla helgina að badmintonast
Við pabbi vorum mjög ánægðir að endurheimta múttuna eftir langa hlaupabóluhelgi
Ég var mjög duglegur að aðstoða við bollubakstur og penslaði allar bollurnar fyrir múttu
Mjög einbeittur að fylgjast með afa negla
Varð að fá að hjálpa aðeins til líka
Við afi erum öflugir saman
Loksins var farið með mig í klippingu þannig að nú sé ég almennilega útúr augum
Amma Sigurlín var búin að bjóðast til að klippa mig en ég vildi bara fara til Bödda
Hættu nú þessum myndatökum mútta og leyfðu mér að borða snúðinn minn í friði
Plís, ekki meira!
Smá barátta þegar verið er að bursta tennurnar á kvöldin
Pabbi þarf stundum að berjast svoldið við mig...
...en svo gengur þetta allt upp að lokum
Skemmtilegast er að skola tannburstann sjálfur...
...setja hann á sinn stað og...
...fá sér svo góðan vatssopa beint úr krananum
Skemmtilegasti partur kvöldsins er svo auðvitað þegar við leggjumst upp í rúm og lesum góða bók saman
Við pabbi erum miklir bókaormar :)
Jibbíí jei... Agnes frænka er loksins flutt til Íslands...
...og litlu systurnar hennar líka
Þær eru voða sætar litlu píurnar. Ragnhildur til vinstri og Eyvör til hægri.
Við fjögur eigum nú ábyggilega eftir að grallarast eitthvað saman
Kannski stingum við þær stundum af eins og mömmur okkar gerðu við Finn og Ástrós í gamla daga?!
Best að nýta restina af snjónum í eitthvað skemmtilegt
Ég er mjög mikið fyrir að búa til kökur þessa dagana og...
...elska að vera úti að moka
Mættur á róló
Pabba mínum finnst líka mjög gaman á róló
Sandkökubakstur í fullum gangi
Gæti verið í sandkassanum allan daginn ef ég mætti
Pabbi að klæða mig í nýja flotta Liverpool búninginn minn
Ég var eitthvað hálf þreyttur og ekki til í að fara í myndatöku í nýja dressinu
Duglegur í íþróttaskólanum og...
...mjög einbeittur :)
Gott að leggja sig á milli erfiðra æfinga
Irena lestarstjóri á leið með alla yfir í þrautabrautina
Þæg og falleg börn að fylgjast með því hvað á að gera næst
Draugagöngin eru í miklu uppáhaldi hjá okkur í Íþróttaskóla BH
Mútta að hjálpa mér
Tilkynnti múttu það að ég vildi gjarnan sofa í þessari vöggu og var ekki að fatta hvaða litla barn ætti eiginlega að sofa þar