MyndaalbúmGestabók

26.mánuður

Fékk þessi flottu Latabæjarnáttföt í jólagjöf frá Kristiani vini mínum
Geggjað ánægður með þessi fínu náttföt
Íþróttaálfurinn og félagar eru mjög spennandi þessa dagana og auðvitað bílarnir líka :)
Brjálað partý hjá okkur á Gamlárskvöld
Pabbi, Þór, Ástrós, Frænka og amma ánægð með matinn
Afi, Áslaug frænka og Frændi líka
Við pabbi úti að fylgjast með sprengjunum á Gamlárskvöld
Við amma komin á áramótabrennu og sprengjurnar eitthvað að hræða suma
Ótrúlega flottar samt þessar sprengjur...
...bara of mikil læti
Við afi spenntir að fylgjast með brennunni
Mamma og ég að horfa á Finn sprengja flottar bombur
Orðin ansi sjóaður í sprengjum og látum og þorði meira að segja að halda á stjörnuljósi alveg einn
Stjörnuljósastuð :)
Hitti þessa tvo skemmtilegu jólasveina á jólaballi í vinnunni hennar mömmu
Fylgdist spenntur með þegar þeir voru að grína og tralla
Var ekkert hræddur við þá og mjög spenntur að vita hvað kæmi uppúr pokunum þeirra
Þegar ég sá að sumir voru farnir að fá nammi vildi ég fá líka
Mjög sáttur við þennan flotta nammipoka :)
Nei mamma mín, ekki opna heima, opna núna!
Búinn að hanga veikur heima í alltof marga daga
Samt alltaf glaður því ég á gott DVD safn og góða sæng til að kúra með uppi í sófa :)
Er annars eitthvað myndavélafælinn þessa dagana
Við Kristian Óskar að ræða stafrófið
Ég að sýna Kristiani stafinn hennar mömmu
Fékk þennan fína slopp í jólagjöf frá Frænku og Ástrós
Bara næs að skella sér í slopp eftir baðið og leika sér smá fyrir háttinn :)
Hressandi að leika sér með Skófla og Moka svona á síðkvöldum
Litli ég var að fá nýtt STÓRT rúm :)
Það er reyndar gamalt nýtt því mamma mín fékk það fyrst fyrir ca. 26 árum síðan
Ég er allavega mjög ánægður með það :)
Pabbi, afi, amma og ég að borða ís í tilefni af nýju rúmi
Veisla í vinnunni hjá múttu vegna skipulagsdags í leikskólanum
Kisuvinirnir amma og Óliver
ummm... amma gaf mér kókómjólk :)
Við Áslaug og afi að kúra saman yfir handboltanum
Áslaug frænka (eða Adda eins og ég kalla hana) og ég að slást
Daníel Árni kom í heimsókn til mín
Við vorum mjög duglegir að leika og ....
...ærslast í sófanum :)