MyndaalbúmGestabók

25.mánuður

Var mjög ánægður þegar ég vaknaði á afmælisdaginn minn
Borvél og allar græjur í þessum flotta pakka
Svo var að sjálfsögðu Kókópuffs í morgunmat í tilefni dagsins
Dáldið erfitt að vera með svona stórar kúlur í munninum :)
Fjölskyldan mín komin í heimabakaða pizzu á afmælisdaginn minn. Finnur, Amma Sirrí, Afi Billi, Amma Lína og Áslaug frænka hress með okkur múttu
Stelpurnar ánægðar með pizzuna. Frábært að amma Áslaug á Akureyri gæti komið líka.
Við fengum tvær kökur í eftirmat
Varð pínu feiminn þegar ég átti að blása á kertin á kökunni
Það gekk nú allt vel með góðri hjálp frá ömmu minni
Fékk þessa fínu kórónu frá krökkunum á Skógarborg leikskólanum mínum
Fólkið mitt í Langagerðinu gaf mér þess fínu Legógröfu sem strax fékk heitið
Get leikið mér endalaust með þennan fína skófla
Guðrún Ósk nágranni minn kom líka í afmælisköku til mín
Mér fannst ótrúlega gaman að sýna þessari fínu stelpu allt Bubbadótið mitt
Gummi frændi og Frímann granni komu líka að kíkja á mig (þeir voru svoldið spenntir yfir einhverju í sjónvarpinu)
Við Guðrún Ósk skemmtum okkur yfir því að skoða myndir af mér þegar ég var lítill á meðan strákarnir horfðu á Liverpool
Elsku Áslaug mín í heimsókn hjá mér
Við erum svo miklir vinir...
...og getum endalaust fíflast saman :)
Fyrsta leikhúsferðin mín (Smiður Jólasveinsins í Möguleikhúsinu)
Við pabbi náðum að halda einbeitingunni nánast allan tíman (pesið sem pabbi keypti í sjoppunni bjargaði okkur)
Amma keypti þetta fallega jólatré handa mér í Þýskalandi
Það þarf mikla einbeitingu við að skreyta þetta fína jólatré
En það er líka mjög skemmtilegt
Fékk þessa fínu húfu í afmælisgjöf frá afa og ömmu í Mosó. Erum við mamma ekki fín svona með alveg eins húfur?
Mamma var að kaupa þessar fínu gardínur í herbergið mitt
Rosa fínt orðið í herberginu mínu :)
Allt orðið klárt fyrir 2 ára afmælið mitt í TBR húsinu
Amma Sirrí og ég að spila badminton við afa
Kominn í lið með afa Billa
Svaka spenntur að opna alla pakkana með hjálp mömmu
Vá hvað ég fékk mikið af flottum fötum og dóti
Bíð spenntur meðan amma mín hjálpar mér að opna þetta fína dót
Voða flott fjórhjól frá Tollu frænku
Við Aron Birgir fórum strax að leika okkur með nýja dótið mitt
Daníel Árni og ég vorum spenntir fyrir boltakörfunni
Allir komnir í kökurnar
Við Kristian Óskar ánægðir með allt nammið
Urðum dáldið subbulegir þegar leið á borðhaldið
Halla Stella komin með bolta
Tanja litla frænka mín...
...og Hildur stóra frænka mín
Áslaug og Ástrós ánægðar með veitingarnar
Gerður, Marta, Sunneva og Elsa
Tanja Ósk ánægð á gólfinu í TBR húsinu
Birta frænka spennt að fara að spila badminton
Lestastrákurinn mikli hann Kristian Óskar
Böddi tók sig vel út á badmintonvellinum
Traust að hafa afa Sigga fyrir aftan í tvíliðaleiknum
Hluti af gestunum mínum í kaffi
Helena og Tanja Ósk hressar
Geggjað að hoppa á þessari dýnu
Litlu ormarnir áttu erfitt með að stilla sér upp í myndatöku
Klappið virkaði best á flesta
Halla Stella systir hans Kristians Óskars
Við Birta frænka erum alltaf til í knús
Hildur frænka er líka knúsari
Stuð hjá okkur eins og alltaf :)
Irena og Halla Stella alltaf svo sætar
Pabbi og afi ánægðir með sig eftir góðan leik
Ormarnir hennar Elsu Sunneva, Kjartan og Aron Bjarki
Anton, Marta og Áslaug góð saman í badminton
Elsa og Ástrós voru líka öflugar
Við Birta að hjálpast að við að opna pakkann frá henni til mín
Rosa flott Bubba Byggir dót sem hún gaf mér
Flottur með Bubba hjálminn
Kominn heim að skoða Bubba dótið mitt betur
Gaman að dunda sér með þetta fína Bubba dót
Við pabbi á leið til Ömmu San í Hveragerði með pakka
Pabbi og ég með afmælisbarninu
Duglegur að hjálpa til við að skrúfa nýjar skúffur í fataskápana
Vildi alls ekki koma útúr skápnum þegar allt var tilbúið
Strákarnir í bíló
Flottur bíll sem Aron Birgir gaf mér í afmælisgjöf
Veigar strákurinn hans Heiðars í heimsókn hjá okkur
Ég var voða góður að lána honum dótið mitt
Flottur strákur hann Veigar sem er alveg að verða 1 árs
Irena, Sibbi, Kristian Óskar og Halla Stella mætt í víxlu nýja borðstofuborðsins :)
Okkur Kristiani fannst nú ekki leiðinlegt að leika okkur saman meðan gamla settið spjallaði
Mikið um að vera hjá okkur félögunum
Bílar og gröfur eru bara skemmtilegt dót
Kristian er samt mest fyrir lestirnar
Halla Stella alltaf mesta krúttið
Ánægður með góða gesti :)
Áslaug og amma gerðu þessa fínu snjókarla með kertaljósi handa mér
Við pabbi að komast í jólafílinginn
Plís viltu koma að sparka á milli?
Það er líka gaman að rúlla á milli...
...og gera teygjuæfingar við og við :)
Alltaf stemning að komast í símann hjá ömmu og afa
Jólasveinninn var svo vinalegur að skilja þennan fína brúsa eftir í skónum einn morguninn
Ahh...gott að drekka vatn úr þessum fína brúsa
Elska að kúra í mömmu og pabba bóli :)
Töffari á leið á jólaball í leikskólanum
Áslaug frænka mín orðin stúdent :)
Best að gefa henni einn stóran koss í tilefni dagsins
Mamma og Áslaug frænka í útskrifarpartýinu
Afi ánægður með Áslaugu sína
Við pabbi ýkt ánægðir með veitingarnar í útskriftarpartýinu
Við mútta með stúdínunni
Kisa lét lítið fyrir sér fara undir kökuborðinu
Sestur við jólaborðið hjá ömmu og afa í Mosó
Ég er ekki mikið fyrir steikur og fékk mér því 1944 hrísgrjónagraut í jólamatinn!
Jólasveinninn var svo góður að senda mér einn svona aukapakka til að opna meðan hinir voru að klára að borða
Það var geggjaður Ferrari kappakstursbíll
Ég gaf mömmu og pabba rosa fína skál sem ég hafði málað sjálfur í leikskólanum í jólagjöf
Afi fékk þessar flottu froskalappir frá mér
Finnur frændi gaf mér þennan geggjað flotta babúbíl
Mikil einbeiting í gangi þegar við frændurnir dunduðum okkur við að setja babúbílinn saman
Áslaug frænka gaf mér þessa fínu snjóþotu sem ég vil reyndar meina að sé bátur
Mjög spenntur að prófa snjóþotuna strax! Vildi samt ekki sitja í henni sjálfur :)
Pabbi og ég komnir út á Jóladag að prófa snjóþotuna
Finnur, Áslaug og amma voru líka spennt að prófa
Vá hvað Finnur renndi sér hratt...
...og Áslaug frænka líka!
Við Finnur frændi að undirbúa okkur fyrir eina af mörgum salíbunum
Hildur frænka og ég komin í jólaboð til ömmu og afa á annan í jólum
Knúsaði að sjálfsögðu Birtu frænkuna mína gleðileg jól
Við frændsystkinin vorum heldur betur á útopnu í jólaboðinu
Mamma náði samt að plata okkur í smá myndatöku
Svo sátum við að sjálfsögðu stillt og prúð þegar amma gaf okkur ís :)