MyndaalbúmGestabók

19.mánuður

Mamma að blása sápukúlur fyrir mig á 18 mánaða afmælisdaginn!
Ég elska sápukúlur :)
Stöðugar fótboltaæfingar í gangi...
...og hjólaæfingar
Þetta er allt að koma hjá mér
Fékk að prófa traktorinn hans afa
Verið ekki fyrir, ég gæti keyrt á ykkur!
Feðgarnir í huggulegum hádegismat í Laugardalnum
Hitti þennan sæta kiðling í Húsdýragarðinum
Það kom ekkert annað til greyna en að kalla hann kisu
Alveg magnað að hann skildi vilja borða grasið úr höndunum á mér :)
Pabbi og ég að skoða selina
Mamma og ég að skoða kanínurnar
Í mínum huga eru kanínur líka kisur líkt og kiðlingar :)
Bílarnir í Fjölskyldugarðinum eru alltaf jafn magnaðir
Lestin er líka í uppáhaldi
Hvar er Óliver, getið þið fundið hann? (næstum týndur í mannfjöldanum á Breiðablik-Valur)
Mikið að gera hjá mér að príla í brekkunni og færa kerruna fram og aftur meðan mamma horfði á Breiðablik-Valur
Við afi borðum stundum kjötbollur saman í hádeginu
Ummmm... ég elska kjötbollur
Pabbi var svo góður að gefa mér Loft
Nú á ég allar Bubbavélarnar :)
Óliver að sýna ömmu sinni nýja djásnið
Mættur í girðingavinnu í Svínadal
Afi og amma voru reyndar duglegust
Ég fylgdist meira svona með úr fjarlægð
Við mútta stungum upp kartöflugarðinn í sveitinni
Moldvarpa í bílaleik
Skemmtilegast var að veltast um í grasinu með ömmu
Hringdi aðeins í pabba til að segja honum hvað við vorum dugleg
Afi bakaði vöflur með kaffinu
Við Einar nágranni vorum mjög sáttir við vöflurnar
Varð svoldið skýtugur á öll moldvörpustandinu
Sem betur fer er bæði til góð sturta og þvottavél heima hjá okkur :)
Get dundað mér endalaust í bíló á þessu litla húsi sem Áslaug frænka smíðaði
Bílar og aftur bílar, það er málið!
Við mamma fundum gamla leikteppið mitt inni í geymslu
Mér fannst frekar mikið stuð að fá að leika mér með það aftur
Lagður af stað á ættarmót í Mýrdalnum
Svaf vært á meðan amma las upphátt úr Vegahandbókinni
Mútta og Áslaug frænka hlustuðu spenntar á
Stoppuðum við Seljarlandsfoss (eins og gert hefur verið í Mýrdalsferðum í mörg mörg ár)
Okkur mömmu fannst fossinn magnaður
Gott að fara í bíló við Seljarlandsfoss
Frændurnir Óliver og Dóri með sama húfusmekkinn :)
Fékk þessa mögnuðu bíla lánaða á ættarmótinu
Dóri frændi var magnaður á gítarnum við varðeldinn
Fyrsta tjaldútilegan mín var bara ansi skemmtileg
Pabbi reitti af sér brandarana við morgunverðarborðið enda vel sofinn eftir góða nótt í tjaldinu
Við afi að skoða vélarnar í sveitinni. Þessi fína var alveg eins og Skófli.
Í fjallgöngu með frænkum og frændum
Traust að sitja í ömmu fangi svona hátt  uppi á fjallinu
Við Jasmin frænka að klappa hundinum í sveitinni
Við afi að skoða okkur um í Steig
Afi og ég erum góðir saman
Fallegt útsýni í sveitinni
Langamma mín er úr Pétursey sem er þarna í baksýn
Ættleggurinn okkar (ég ekki alveg til í myndatökur)
Læddist inní bílskúr og fann þennan skemmtilega kassa með ýmsu dóti
Nei ég vil ekki fara úr bílskúrnum, er viss um að afi segir að þetta sé í lagi
Maður verður náttúrulega mjög vonsvikin þegar maður fær ekki það sem maður vill!
Hver segir að maður þurfi að fara til útlanda til að geta stiplast í sólinni?
Algert æði að hlaupa hring eftir hring í garðinum og engin bleyja eða föt til að trufla hreyfingarnar :)
Við mútta skelltum okkur í göngutúr í Elliðaárdalinn og tókum með okkur nesti
Horfði endalaust á þessa krakka henda sér í vatnið
Kastaði nokkrum steinum í vatnið
Finnst ég frekar góður kastari
Frændsystkynin mætt á fjölskyldumót við Apavatn
Fínt að fara í golf við Apavatn
Þar var líka þessi skemmtilegi kofi...
...og þessi fína rennibraut
Hildur frænka og dúkkan hennar í rennibrautinni
Mér fannst geggjað í bílaleik með Alexander Jarli frænda mínum...
...og ennþá meira stuð að gefa honum five :)
Barnabörnin hennar Barböru voru endalaust skemmtileg og lásu meira að segja fyrir mig
Svo kom 17.júní með fánum og fjöri
Ekki leiðinlegt að vakna með bíla undir koddanum á sjálfan Þjóðhátíðardaginn
Við mamma skelltum okkur í 1 árs afmæli hjá Daníeli Árna á 17.júní
Afmælisdrengurinn að blása á afmæliskertið með hjálp mömmu sinnar
Hressir feðgar á tónleikum í miðbænum
Steig trilltan dans við söng Maríu og Siggu úr Söngvaborg
Geggjað stuð að fara á svona útitónleika