MyndaalbúmGestabók

18.mánuður

Ég var alveg að sofna í bílnum þegar við mamma fundum þennan róló niðri í bæ
Hresstist allur við að skella mér í rennibrautina
Líka svoldið gaman að vesenast með þessa steina :)
Þeir gerast ekki mikið krúttlegri plömmerarnir :)
Áslaug frænka mín og ég í göngutúr
Hún var að reyna að kenna mér að valhoppa
Fórum saman á róló
Ekta rólóstrákur með smá hor í nös :)
Duglegur að príla í kastalanum
Amma kom líka á róló...
...og við fórum endalaust oft í rennibrautina
Duglegt fólk í vorhreinsun í kvöldsólinni
Allt á fullu hjá okkur ömmu. Ekki einu sinni hægt að ná óhreyfðri mynd af okkur!
Við Áslaug að slást og Angalangur fylgist spenntur með
Voða góður við Angalang
Honum finnst samt best að reyna að halda sig í hæfilegri fjarlægð frá mér
Voða sport að fá eitthvað gott í skál
Í dag voru það fræ!
Samt ekki fuglamatur :)
Hættu þessum myndatökum mútta það er eitthvað geggjað spennandi í sjónvarpinu
Besti staðurinn til að vera í bíló er undir eldhúsborðinu
Það er bara eitthvað svo kósí :)
Pabbi gaf mér þennan rosa flotta Bubbakubbakassa þegar hann kom heim frá útlöndum
Fylgdist mjög spennur með þegar pabbi var að setja saman Hringlu
Ótrúlega ánægður með Hringluna mína :)
Það var líka Bubbaverkstæði í kassanum og fleira skemmtilegt
Nóg að gera hjá okkur Bubba framundan
Pabbi gaf mér líka þessa geggjuðu skó með blikkandi ljósi :)
Allir í Eurovisionpartýinu okkar héldu með Eika Hauks - sérstaklega Harpa frænka :)
Mamma bakaði Íslandsköku í tilefni Eurovisionkeppninnar
Svo var líka ís í þjóðlegum stíl :)
Þrátt fyrir fagnið og þjóðlegu kökurnar komumst við ekki áfram í þetta skiptið
Við pabbi í sykursjokki en samt ekkert tapsárir
Fyrsti sláttur sumarsins
Kókómjólk og kaka í kaffinu, ummm.....
Útikaffi er bara hressandi :)
Sandhaugurinn er alltaf jafn vinsæll
Gerir mann svoldið skítugan
En það er bara skemmtilegt að vera skítugur :)
Amma var svo góð að tjalda þessu fína tjaldi sérstaklega fyrir mig
Við mamma ánægð með þetta fína tjald
Ætlum sko pottþétt í tjaldútilegu í sumar
Það verður sko gaman hjá okkur :)
Angalang fannst líka gaman að skoða þetta fína tjald
Hvert ert þú að fara Anginn minn?
Anginn er undir tjaldinu!
Hvar er kisa? (fyrsta setning Ólivers)
Þarna er hún :)
Áslaug frænka snillingur gerði við gamla vagninn hans Finns og dróg mig í honum
Meiriháttar stuð!
Áslaug frænka mín finnur alltaf uppá einhverju skemmtilegu
Kisa fær að sjálfsögðu alltaf að vera með líka
Vinsælt að leika sér fyrir framan spegilinn sem alltaf er kámugur þessa dagana
Stundum er stiginn trilltur dans!
Nýjasta orðið mitt er bobba (poppa)
Alger snilld þegar mamma og pabbi poppa og við horfum á sjónvarpið saman :)
Þetta fína teppi gerir leikinn mikið skemmtilegri
Svoldið rokkað að vera með svona sítt hár eins og Eiki Hauks :)
Duglegur að dunda sér í bílunum
Enda ekkert smá safn!
Óliver bendir á bíla og segir bíllar alla daga en kann bara fleirtöluna :)
Bílar eru bara svo skemmtilegir
Við Áslaug frænka mættum galvösk á KR-Breiðablik í hagléli og vorum bara nokkuð ánægð með jafnteflið
Flugvél?
Óliver og afi einbeittir á gröfunni
Gaman að prufukeyra svona flotta gröfu
Óliver horfir heillaður á þessa gulu glæsikerru
Tilraun gerð til að fá að fara aftur í gröfuna!