MyndaalbúmGestabók

17.mánuður

Mættur í heimsókn til Áslaugar og co.
Oddný Erla var hress
Teodór Ingi líka
Það var svakalega gaman að leika með þeim systkynum
Ég var alltaf að reyna að gilla Oddnýju Erlu
Stuð að príla í sófanum
Heimsæki þessa hressu krakka ábyggilega fljótlega aftur :)
Mamma, Kristján og Sigga Íslandsmeistarar í badminton :)
Ég var upptekin við að leika mér með ömmum og öfum á meðan
Stóri strákurinn vill bara borða sjálfur
Gengur bara nokkuð vel
Mjólkin er samt alltaf best
Bíddu nú við! Hvað er Óliver að gera uppá borði?
Litli klifrukötturinn fer uppí sófa og klifrar þaðan á sófaborðið
Fer svo uppá sófaarminn...
...og hendir sér í sófann!
Upprennandi fimleikafótur?
Nei, held ég skelli mér frekar í badminton :)
Sundgarpurinn mikli
Skoppar um í lauginni með kútana sína
Fer í kaf eins og ekkert sé...
...og kemur brosandi upp aftur
Mesta stuðið er að klifra í stiganum...
...standa þar upp og...
...kasta sér svo útí laug
Svo er líka forvitnilegt að fylgjast með stórum krökkum æslast í lauginni
Áslaug frænka mín er skemmtilegur sundfélagi
Fór í heimsókn til Irenu og Kristians Óskars og fékk að hitta nýju sætu prinsessuna á heimilinu
Uppáhalds sandhaugurinn :)
Duglegur að moka
Hættu þessum myndatökum múttu og komdu að hjálpa mér!
Boltar eru líka skemmtilegir
Kann að sparka og allt
Lykillinn er að taka gott tilhlaup
Boltar eru líka ansi fínir að tilla sér á :)
Í Húsdýra- og fjölskyldugarðinum með mömmu, Gabríel Inga og Kristiani Óskari
Irena var líka með okkur
Lestin var ótrúlega spennandi
Langaði samt mest að vera lestarstjórinn í fremsta vagninum
Kristian og Gabríel að kíkja út um gluggann á skemmtilegum húsum sem við sáum
Litli ég var með líka
Má ég koma inn elsku Kristian minn?
Páskaungarnir voru mjög spennandi
Skellti mér í Naglfarið áður en við héldum heim á leið...
...það var bara skemmtilegt
Mættur uppí sumarbústað til ömmu og afa
Spennandi að leika með litla húsið sem Áslaug frænka smíðaði
Pabbi og amma voru dugleg að vinna á meðan
Pabbi og ég í eltingaleik á veröndinni
Ég að hjálpa afa með spýturnar
Gaman að leika í sveitinni
Við pabbi að fá okkur ananas í kaffitímanum
Mútta og ég að tjilla
Amma að knúsa mig bless
Birta frænka og ég í páskaheimsókn hjá ömmu og afa
Hildur frænka kom líka og við fórum öll í boltaleik
Litla Tanja verður með okkur þegar hún er orðin stærri
Mamma mín og pabbi minn í veislunni
Afi og ég að horfa á Hektor útum gluggann
Hann er mikið fyrir fótbolta eins og ég
Pabbi sagði Hildi og Birtu söguna um Mikka ref og félaga
Birtu fannst pabbi fyndinn
Sigga og Hektor að knúsast
Birta frænka er eiginlega alveg farin að ganga
Afi og Tanja voru góð saman
Sigga og afi með okkur ormana í páskaveislunni
Mamma og ég við glæsilegt páskamorgunverðarborðið
Ástrós frænka vaknaði snemma til að borða með okkur rúnstykki og páskatertu
Heitt súkkulaði úr stútkönnu er ekki sem verst
Amma, Sigga og Hildur fóru með mér í Húsdýragarðinn á páskadag
Þessi krúttlega kisa fór uppá stein þegar ég reyndi að ná í hana
Allir spenntir að sjá selina fá matinn sinn
Harpa, Birta, pabbi og ég að skoða kindurnar
Við vorum öll í góðum gír á páskadagsmorgun
Hestarnir voru bara nokkuð spenntir að hitta okkur Birtu frænku
Hildur frænka og ég í lestinni sívinsælu
Birta og Harpa fóru með okkur líka
Afastelpurnar í risa kerru
Litli ég náði varla uppfyrir stýrið á rafmagnsbílunum í Fjölskyldugarðinum
Keyrði samt alveg sjálfur
Birta og ég að fylgjast með hinum í bílnum
Birta var hress en ég vildi bara komast aftur í bílana
Hér vil ég vera!
Pabbi og ég einbeittir með sitthvora tölvuna að horfa á sjónvarpið!
Ef Bubbi birtist á skjánum verð ég alveg stjarfur
Ég er veikur og....
...vill bara kúra í mömmu fangi
Hresstist aðeins við þegar mamma fann uppá þeim skemmtilega leik að raða öllum bílunum upp...
...og láta þá renna niður þessa heimatilbúnu bílabraut!
Bjargaði deginum :)
Pabbi dekraði við mig í veikindunum og leyfði mér að horfa á Bubba og fá fulla skál af poppi með
Mikil spenna í gangi hjá Bubba og félögum
Mamma leyfði mér að lita smá í gömlu litabækurnar hennar - gekk svona upp og ofan :)
Fékk nýtt Bubbadót í dag - Moki kominn í safnið
Bubbadótið er bara skemmtilegasta dót í heimi
Einbeittur með vélarnar hans Bubba þá Skófla, Moka og Valta
Hitti nokkrar gæsir þegar ég var á göngu í Laugardalnum
Duglegur göngugarpur
Alltaf gaman að skoða nýja kastala víðsvegar um bæinn
Hver fékk þessa flottu sumargjöf?
Heppni strákurinn ég :)
Kann ekki alveg á þetta en...
...lúkka samt vel :)
Ekki versnaði dagurinn þegar amma og afi í Mosó færðu mér þessar flottu hjólbörur
Fór strax út að vinna enda frábært veður á Sumardaginn fyrsta
Brjálað að gera hjá mér meðan afi sat í kaffi
Ekkert er skemmtilegra en að leika sér úti í sandinum
Mér finnst sápukúlur alveg magnaðar
Afi er ótrúlega góður í að blása sápukúlur
Sumarfjör hjá okkur
Æfingar í fullum gangi
Ánægður með nýja hjólið sitt
Sérstaklega Bubba Byggir flautuna
Bubbi er kominn í Kringluna :)
Enginn tími til að brosa í myndavél þegar maður hittir Bubba sinn
Fínt að sitja bara á pallinum á glæsikerrunni þegar maður kann ekki að hjóla
Bubbaflautan er bara flott :)
Þessi litli snáði kann sko að láta fara vel um sig
Vá, flottir skór!
Ætli þeir passi?
Duttu því miður af þegar ég reyndi að ganga!
Alltaf að prófa nýja rólóvelli
Rólóinn á Skógarborg er bara nokkuð skemmtilegur
Gleði gleði á róló á sunnudagsmorgni
Rennibrautin er skemmtilegust
Fer alveg sjálfur upp stigana...
...og renni mér svo rólega af stað niður.