MyndaalbúmGestabók

16.mánuður

Mamma vildi fara með mig á róló en ég var of upptekinn að horfa á....
...þessa skemmtilegu fugla í trjánum
Horfði bara upp í loftið og...
...sagði
Bí bí bí bí bí....
Hver er nú þarna inni í bílskúr?
Nú auðvitað hann afi sem er alltaf eitthvað að bauka
Afi og dótið hans í bílskúrnum er bara spennandi
Litla apakettinum finnst mjög gaman að fá góða salíbunu í vagninum
Óliver að taka nokkur létt dansspor fyrir Áslaugu frænku sína
Flottur gæji nýkomin úr sinni fyrstu klippingu hjá Bödda frænda
hmm... hvor þessara ætli setji Bubba vin minn á skjáinn?
já alveg örugglega þessi
Duglegur að taka til í skápunum á heimilinu
Skáparnir eru bara skemmtilegastir um þessar mundir
Já og eldavélin líka :)
Íþróttabandalag Reykjavíkur góðan dag!
Of ungur til að taka símann?
Nei, nei get meira að segja vinkað um leið :)
Sjálfstæðisbarátta í gangi
Mikið skemmtilegra að borða sjálfur
Eins gott að það er til góð þvottavél á heimilinu
Allt búið!
Duglegur að leika úti í garði
Mikið að gera við að elda hádegismat
Viltu hafa þetta vel steikt mútta mín?
Smá hor í nös þannig að ég svaf bara inni í dag. Spurning hvort að vagninn sé ekki að verða of lítill?
Stolltur kisueigandi
Aaaa við kisu sína
Þar sem kisa er vil ég líka vera
Hún er svo mjúk og góð elsku kisan mín
Vinir og félagar, Angalangur og Óliver Bill :)
Sandhaugurinn í garðinum hjá ömmu og afa er mjög vinsæll þessa dagana
Gæti mokað allan daginn ef það væri í boði
Mátti þó til að líta uppúr haugnum þegar ég sá Angann í stofuglugganum
Bubbi og allt sem honum tengist er algert uppáhald og nú á ég bæði Valta og Skófla
Mútta og ég kíktum á endurnar niðri á Tjörn
Okkur fannst þær heldur ágengar. Enduðum á því að henda í þær heilum brauðsneyðum til að vera ekki étin sjálf.
Hér er ég t.d. á hlaupum að flýja undan stórum hóp af þessum skrýtnu dýrum
Reyndi að tala þær til og biðja þær að róa sig
Þær hörfuðu aðeins þegar ég byrjaði að sussa á þær og sveifla vetlingunum
Óþekktar endur
Við mamma höfðum nú samt gaman af þessu öllu saman
Ekki leiðinlegt að fá að fara í göngutúr í bænum. Naut þess í botn.
Samt pínu pirrandi þegar ég datt í poll!
Ása vinkona mín var að gefa mér þetta fína handklæði
Mamma segir að þetta sé ótrúlega gott handklæði því að það er svona eins og peysa og ég geti ekki hent því af mér
Ísskápurinn er besti hægindastóllinn þessa dagana
Það skilur enginn hvað mér finnst gott að tjilla hérna með bók eða eitthvað annað :)
Afi og amma í Mosó að kúrast með mér í sófanum
Skógarþrestirnir vinir mínir að borða rúsínur
Meiri rúsínur, þeir eru svo svangir!
Ákveðinn lítill flugavinur
Fékk þessa fínu stelpu í heimsókn til mín sem heitir Katla
Kvaddi hana að sjálfsögðu eins og alla aðra gesti með einum góðum kossi
Birta frænka gaf mér þennan svaka fína Dipsí í jólagjöf
Hann spilar lag og við dönsum saman við lagið
Píanóið er alltaf jafn vinsælt
Ástrós frænka og ég að skoða skemmtilegar bækur
Rólóstrákurinn mikli!
Haugskítugur og blautur eftir nokkrar góðar ferðir í rennibrautinni
Birta frænka og ég komin í heimsókn til ömmu og afa
Birta fín með tígó
Við að grallarast með ömmu og afa
Vantar þig ekki hatt Birta mín?
Svona já, á með hattinn fína
úbbs, hún sér ekki útúr augum
Skálar eru sko ekki hattar elsku frændi minn
Þetta var nú samt svoldið skemmtilegt að prófa
Knúsaðu mig elsku frænka mín
Alltaf gaman að fá að fara í Smáralind og hitta Bubba
Hann er bara alger snillingur hann Bubbi vinur minn
Útistrákur
Gaman að bardúsa með vatn í potti og fleira skemmtilegt dót
Angaland finnst lúmskt gaman að fylgjast með mér
Upprennandi uppvaskari
Hver þarf uppþvottavél þegar svona öflugur drengur er á heimilinu
Einbeittur með þvottabustann
Mættur á Gunnu og Bjarna róló
Best að skella sér í rennibrautina
Fór aleinn upp stigann
Það var sko ekki vandamál
Sko, kominn alla leið upp
Svo er bara að skella sér af stað
Þeyttist út á mölina eftir hverja ferð en fór samt alltaf aftur og aftur :)
Stuð á Gunnu og Bjarna Róló