MyndaalbúmGestabók

15.mánuður

Við mútta erum svoldið dugleg að fara á róló þessa dagana
Kellan minnkaði við sig vinnu og eyðir nú meiri tíma með prinsinum mér :) jibbbíííí
Við afi að skoða gröfuna okkar hana Beltasóley - alveg heillaðir
Meiriháttar stuð að taka til í garðinum
Burtu með allt rusl og drasl!
Bubbi Byggir er uppáhalds þessa dagana - pabbi gaf mér því þennan fína síma
Öflugur á bongótrommunum í TBR-húsinu að hvetja BH-ingana áfram
Mamma og BH-ingarnir Íslandsmeistarar í badminton
Pabbi og ég að skoða nýja hundinn hennar Hildar frænku
Hildur frænka og ég erum svo góð að leika okkur saman
Hektor litli er voða sætur og góður hundur
Súkkulaðitöffarinn Óliver Bill
Er alveg með það á hreinu hvað er gott að borða
Súkkulaðikaka er snilld :)
Plís gefðu mér smá meiri köku mútta mín
Byrjaður að klifra upp um allt
Það er svo mikið betra útsýni hérna uppi í glugga
Duglegur að leika í snjónum
Flottur í nýja gallanum frá Önnu Margréti vinkonu
Fínt að fara út að skokka í þessum góða galla :)
Heillaður af snjónum
Loksins er ég hættur að vera veikur og get skoðað nánar þennan skemmtilega snjó
Áfram heldur klifrið
Pant sitja í þessum þegar Bubbi Byggir er í sjónvarpinu næst
Duglegur að dunda sér með dótið sitt
Nýjasta stuðið er að draga dót á eftir sér
Alltaf góð stemning hjá mér :)
Tek í spaðann öðru hvoru
Mútta er ánægð með það :)
Við mútta aðeins mygluð í morgunsárið
Eva, Kristófer Örn og Sara Ósk í heimsókn hjá mér
Þeim leist voða vel á píanóið mitt
Mamma skilur ekki alveg hvernig ég komst ofan í dótakassann minn!
Það er svo mikið þægilegra að komast að dótinu hérna ofan í
Mættur í afmæli til Söru og Kristófers
Við Sara að grínast saman
Birta frænka mín er alltaf hress og kát
Knúsaðu mig elsku Birta mín...
...og gefðu mér einn góðan koss
Afi Billi og litlu ormarnir hans
Óliver á sprettinum eins og vanalega
Einbeittur með Bubbasímann
Félagarnir, Bubbi Byggir og ég, í Smáralindinni
Ég í göngutúr með ömmu og afa
Voða stuð hjá okkur
Pabbi minn loksins kominn heim frá útlöndum
Fékk þetta flotta dót frá honum
Hægt að tengja alla bílana saman - geggjað flott :)
Litli gamli stólinn hennar Áslaugar frænku er voða skemmtilegur þessa dagana
Ýti honum á undan mér og set alls kyns dót ofan á hann
Svo er hann líka ósköp góður að sitja á :)
Tók nokkrar bækur með mér í TBR um helgina til að sýna krökkunum
Fékk skyr í hádeginu
Mamma var voða upptekin af að fylgjast með krökkunum spila badminton þannig að ég hjálpaði mér bara sjálfur
Var víst aðeins of subbulegur við þetta en samt góð tilraun
Skelltum okkur í göngutúr í Laugardalnum
Það var bara svaka stuð :)
Einbeittur að spila á píanóið
Stundum færist fjör í leikinn!
Agnes frænka sem býr í Danmörku komin í heimsókn til mín
Við vorum voða dugleg að leika
Gott að eiga svona stóra frænku sem nær lengra ofan í dótakassann
Kisa var vinsæl hjá okkur
Agnes var svo góð að lána kisu gríslinginn sinn
Verðandi stórfjölskylda Jóanna, Ómar og Agnes
Ég að lesa fyrir Ómar og Agnesi
Frændsystkynin í hádegismat
Sjónvarpsborðið hefur fengið nýtt hlutverk...
...matarborð fyrir Óliver Bill
Agnes frænka var í þessum fína fílabúningi á Öskudaginn
Fínir krakkar í Öskudagskaffi í Langagerðinu
Ömmurnar með ormana sína
Gerður gaf okkur rosalega góða nammipoka í tilefni Öskudagsins
Við höfðum varla tíma til að kíkja uppúr pokunum okkar
Óliver var mjög sáttur við þennan fyrsta nammipokka sinn
Tvíburarnir Sunneva og Kjartan með flotta andlitsmálningu
Agnes og Sunneva ánægðar með nammipokana góðu
Ástrós og Gerður að rifja upp gamla Öskudagssöngva
Orðinn alger klifruköttur
Mamma og pabbi verða mjög hrædd um mig þegar ég fer í þessar stellingar
Duglegur að dunda sér í eldhúsinu
Spaðinn góði og plastdollur eru mjög skemmtileg leikföng
Lestrarhestur
Skemmtilegt að renna með pabba
Það var líka stuð í rólunni og....
...á vegasaltinu
Bráðum get ég kannski rólað sjálfur
Kannski verð ég búðamaður þegar ég verð stór?
Þór frændi og ég í kaffi hjá Frænku
Við Agnes dugleg að leika saman
Gömlu traktorarnir hans Dóra frænda slógu alveg í gegn þrátt fyrir að vera komnir á fertugsaldurinn
Agnes verðandi tvíburasystir að æfa sig
Agnes að sýna mér nýja DVD spilarann sinn
Mér fannst hann mjög flottur og pantaði strax næstu afmælisgjöf :)
Amma var að passa mig og leyfði mér að borða kvöldmatinn í stofunni