Gestabók
Það hafa 138 skráð sig í gestabókina
Helena
Hæ sætu dúllur. Til hamingju með afmælið Oliver og til hamingju með mömmu ykkar ;-)Kv,
Helena
30.11.2008 - 12:44
Fanný
Til hamingju með daginn í dag! Takk fyrir frábæra afmælisveislu(r) síðustu helgi.Knús, Fanný og fjsk.
28.11.2008 - 17:13
Irena
Hæ flottu systkin. Alltaf jafn gaman að skoða myndir af ykkur. Stórt knús til stóra lasna snáðans. Vonandi fáum við að sjá ykkur næsta sunnudag í íþróttaskólanum.Knús,
Irena og co.
09.11.2008 - 16:27
Oddný
Rosalega eru þetta flott og fín börn sem eiga þessa heimasíðu :) Væri gaman að fara að hittast! Kv. Oddný og Þórdís Nanna25.10.2008 - 17:15
Brynja
Alltaf jafn gaman hjá ykkur og nóg um að vera.Við verðum nú að fara hittast elsku fjölskylda.
kv. Brynja og co.
17.10.2008 - 12:45
Adda frænka
Thid megid eigilega ekki stækka svona mikid og læra svona mikid an thess ad eg se hja ykkur. Mer finnst eins og eg se ad missa af svo miklu!Hlakka til ad sja ykkur um jolin.
Kvedja,
Aslaug sys / Adda
29.09.2008 - 13:33
frænka ragnhildur
Gaman að sjá myndirnar frá Köben. Það hefur verið gott að hafa ömmu með í ferðinni.Dugleg og efnileg íþróttastúlka hún Katla Sól.
Kveðja FRÆNKA
21.09.2008 - 16:47
Irena
Elsky systkin,takk fyrir góðan dag í gær. Vonandi er stóri bróðir orðinn hress. Segi nú bara við litlu skvís: ,,við sjáumst á röltinu á næstunni". Ótrúlega dugleg sú stutta!
Knús, Irena
30.08.2008 - 09:19
Hallbera
Hæ Anna og Addi!!Gaman að hitta þig í H-sel... greinilega ennþá aðal staðurinn:)
En hvað þið eruð sæt systkin.. búin að fara í helling af útilegum og fjör! Lítur út fyrir að við förum í okkar fyrstu næsta sumar!!
Bestu kveðjur frá Laugarvatni
Hallbera, Smári, Friðrik og Logi
25.08.2008 - 11:35
Unnur Ylfa
Þið eruð meiri rúsínurnar bæði tvö og alltaf gaman að kíkja á myndir af ykkur.19.08.2008 - 17:56
Fanný
Að sjálfsögðu voru þetta Asíubúar með myndavélarnar á lofti :) Rólóinn sem þið voruð á er tilvonandi leikskólinn hans Daníels. Hann prófaði rólóvöllinn um daginn og leist sérstaklega vel á allt klifurdótið sem er þarna!Kv. Fanný
06.08.2008 - 17:16
Irena
Hæ yndislegust.Mikið hefur verið gaman hjá ykkur fyrir norðan. Hlakka til að sjá ykkur á morgun.
Knús, Irena
02.08.2008 - 19:24
Inga Magga
Þið eruð nú meiri krúslusystkinin. Knúsur til ykkar og sumarkveðja :)20.07.2008 - 11:18
Elna og Dóra Sigrún
Takk fyrir komuna í MH- hittinginn. Rosalega gaman að sjá ykkur sætu systkin og mömmuna líka :)Sjáumst vonandi sem fyrst aftur,
kv. Elna og Dóra Sigrún
14.07.2008 - 13:43
Bjarney og mamsa
Hæ sætu systkin,Það er alltaf svo gaman að hitta sundprinsessuna ;-) Hlökkum til að sjá ykkur á morgun.
Kv,
Bjarney og mamsan
09.07.2008 - 14:03
Irena
Hæ, yndislegust.Mikið eruð þið alltaf sæt og fín. Stóri bróðir er svo sannarlega að standa sig í hlutverkinu.
Takk fyrir heimsóknina, alltaf jafn gaman að hitta ykkur.
Kv. Irena
05.07.2008 - 21:06
Inga Magga
Halló halló... krúttulínur. Mikið svakaleg eru þið sæt systkini :) Knúsur til ykkar og já..... sammó Elnu, hittingur bráðum - alveg til :)21.06.2008 - 13:30
Ólöf Ólafsdóttir og Júlíus Aron
Hæ hæ...Alltaf gaman að kíkja í albúmið ykkar, alveg yndislegir krakkar. Júlíusi þætti nú ekki leiðinlegt að fara í bílaleik með Óliver og núna er Cars aðalæðið eða "bila" eins og það heitir hér hjá okkur...Sumarkveðjur frá Dk..16.06.2008 - 20:42
Elna Ósk
Sætu systkini!!!!Gaman að sjá allar fínu myndirnar af ykkur.
Við mæðgur erum að fara í sumarfrí núna 23. júní og værum alveg til í að hitta ykkur, Ingu Rún og Möggu okkar í fríinu!
Bestu kveðjur Elna Ósk og Dóra Sigrún
15.06.2008 - 12:08
Irena
Til hamingju með nýju vélina Anna Lilja. Hlakka til að sjá ókomnar myndir:)Kv.iri
06.06.2008 - 19:59
Irena
Hæ öll,svona mikil stemning í Maríubaugi í undankeppninni, hvernig verður eiginlega kvöldið í kvöld:) Góða skemmtun, áfram Ísland!
Kv. Irena
24.05.2008 - 11:23
Fanný
Takk fyrir daginn í dag, þetta var mjög ,,hyggeligt". Daníel sagði ,,Óli" þó nokkrum sinnum í kvöld þegar hann var í bíló :)Knús, Faný
18.05.2008 - 22:17
Brynja og co í Danaveldi
Elsku fjölskylda innilega til hamingjum með nöfnin á prinsessunni. Mikið rosalega eru þið rík og eigið falleg börn. Rosalega gaman að skoða myndir og þau eru svo góð systkinin.Bestu kveðjur til ykkar
Brynja og co.
06.05.2008 - 22:41
Imba
Til hamingju með nafnið á prinsessunni ykkar, fallegt og hæfir vel brosmildri dömu.Knús Imba
04.05.2008 - 21:55
Þórey Sjöfn
Til hamingju með nýja stelpu og nafnið hennar :)... var búin að skoða hér allt hátt og lágt um daginn en tók ekki eftir því að ég gat kvittað fyrir mig :( Lámarkskurteisi eftir að hafa skoðað allt hátt og lágt hér og dáðst að fottum systkinum, verðum að fjárfesta í svona peysu sem Irena er greinilega að kaupa í tugatali... Sendum kveðjur í Grafarholtið en þar eigum við einmitt stóran hluta af okkar fólki. Knús Þórey, Elli og co27.04.2008 - 23:59
Irena
Tilhamingju með fallega nafnið þitt Katla Sól.Kv.Irena
26.04.2008 - 12:21
Irena
Vá hvað ég er orðin spennt að heyra nafnið á prinsessunni!Kv. Irena
23.04.2008 - 21:20
Fanný
Get ég ekki fengið þig til að sjá um að setja inn myndir fyrir mig!? Er orðin alltof löt við þetta :)En gott að þú ert dugleg, alltaf gaman að skoða myndir þegar maður á að vera að gera verkefni.
Kv. Fanný
16.04.2008 - 11:46
Brynja
Æðislegt að skoða myndir. Þið eruð svo dugleg að gera eitthvað. Greinilega mjög gaman í íþróttaskólanum hlakka til að kíkja til ykkar þangað.Hafið það allra best.
kveðja frá DK
Brynja og co.
08.04.2008 - 12:23
Brynja
Æðislegt að skoða myndir. Þið eruð svo dugleg að gera eitthvað. Greinilega mjög gaman í íþróttaskólanum hlakka til að kíkja til ykkar þangað.Hafið það allra best.
kveðja frá DK
Brynja og co.
08.04.2008 - 12:23
Ólof Ólafsdóttir
Sæl og blessud og innilega til hamingju med litlu dúlluna. Tetta eru algjorir gullmolar sem tu att.Bestu kvedjur Olof og co.
05.04.2008 - 06:48
Fanný
Maður verður að fara að kíkja í heimsókn og skoða þessa stóru stelpu betur. Sé líka að Óliver og Daníel deila áhuga sínum á strætó, Daníel grenjar þegar við förum úr strætó honum finnst þetta svo skemmtilegt.Kv. Fanný
04.04.2008 - 12:35
Irena
Ja hérna hér, nú verður mín að fara og skella sér í heimsókn - orðin nokkuð spennt að fá að máta almennilega.Kv. Irena
26.03.2008 - 16:52
Elena Rún
Hæ sæti frændi. Gaman að sjá hvað hún littla systir þín dafnar vel. Biðjum að heilsa mömmu þinni og pabba og endilega við tækifæri kíktu á síðuna mína (www.barnanet.is/elenarun) finnst svo gaman að fá kveðjur.Lykilorðið er eftir nafnið hans afa Juan(hljótið að skilja það) ef ekki þá sendiði mail á mömmu.
Koss og Knús á ykkur öll.
17.03.2008 - 15:24
Sara
Innilega til hamingju með litlu sætu snúlluna elsku Anna mín og Addi Bill.Hún er ekkert smá sæt, algjört bjútí og svakalega tönuð;) Alltaf svo gaman að skoða myndirnar. Ég verð að fá að koma mjög fljótlega í heimsókn til ykkar og sjá nýju fallegu skvísuna.
Knús,
Saran
13.03.2008 - 21:39
Hjördís Gúmm - x-íbringur
Já zæll - internetið er góður staður - var að velta þessu fyrir mér hvort þú værir búin að eiga - og viti menn hvert fer ma´r þá og finnur út úr því! Var að spá í að hringja og spyrja þig hvort það væri ekki nóg að þú flyttir í sömu götu og FAF - þú þyrftir nú ekki að eiga barn sama dag og hann var fæddur (reyndar fyrir rosalega löngu síðan) - það er ekki eins og FAF geti hækkað launin þín hjá BSÍ!!En ok - til lukku með þetta - ekkert lítið sæt snúlla. Bezt að stökkva á stóra bróður í leikskólanum og óska honum til hamingju. Annars var ég að heyra af fólki sem er að flytja úr Fossvoginum....
04.03.2008 - 10:52
Irena
Fæ aldrei nóg af börnunum þínum, varð að koma í heimsókn svona rétt fyrir háttinn.Myndin þar sem pabbinn er að baða prinsessuna er algjört æði, hann virkar svo áhyggjufullur:)
Kv. Irena
03.03.2008 - 23:41
Imba
Innilega til hamingju með dömuna og gangi ykkur allt í haginn.Kveðja Imba and family
02.03.2008 - 19:51
Oddný
Elsku Anna Lilja og fjölskylda!Innilega til hamingju með litlu prinsessuna! Kv. Oddný
01.03.2008 - 18:52
Erla, Elvar Már og prinsessan
Hæ kæra fjölskylda og til hamingju með fallegu prinsessuna.Kveðja,
Erla og co...
01.03.2008 - 16:53
Elna Ósk
Vá hvað þú ert flottur stóri bróðir Óliver Bill, algjört æði, til hamingju með litlu systir.Innilega til hamingju kæra fjölskylda, algjör snúlla dúlla!
Kv. Elna Ósk
28.02.2008 - 18:55
Inga Magga
Hæ hæ sæta fjölskylda og til hamingju með litlu prinsessuna. Hún er aljgört krútt. Nú verður maður að fara að kíkja í kaffi, frétti að þið væruð flutt, til hamingju með það líka :) knúsar28.02.2008 - 11:05
Inga Rún
Æi Jesús minn hvað maður er sæt prinsessa!!! Hlakka rosalega til að koma aðeins að kíkja á ykkur eftir tvo daga :-)Knús
Ingsa
26.02.2008 - 20:51
Indiana,Gulli og Elena Rún
Hæ sæta frænka og velkomin í heimin. Þú er nú meira bjútiið. Elsku fjölskylda innilega til hamingju með dömuna. Hún er æðisleg og svolítið lík bróður sínum:)Hlökkum til að sjá hana kveðja úr hveró Indy, Gulli og Elena rún
26.02.2008 - 17:46
Fanný
ohh, hún er æði. Sammála mömmunni um að hún líkist Óliver þegar hann var glænýr. Sýnist hún líka vera með sama ljósa hárið :) Hlakka til að fá að kíkja á ykkur fljótlega.Knús, Fanný
26.02.2008 - 15:32
Barbara frænka
Velkomin í heimin litla frænka, hlakka til að hitta þig og Oliver til hamingju með litlu systir þína. Viltu skila til mömmu og pabba hamingju óskum líka.26.02.2008 - 15:26
Eva
æææ hvað hún er sæt.. og nokkuð lík pabba sínum þó ég verði nú að dæma í eigin persónu :) ég iða alveg í skinninu eftir að kíkja til ykkar en ætla nú samt að gefa ykkur smá tíma til að hvíla ykkur og kynnastkv Eva
26.02.2008 - 14:20
Irena
Hæ sætu systkin. Búin að skoða ykkur fram og til baka;) Mikið eruð þið lík og gaman að sjá mælinguna, gæti ekki verið nákvæmari uppskrift.Hlakka til að knúsa litla/stóra bróðir og fá að sjá prinsessuna með eigin augum.
Knús, Irena og fjölskylda.
25.02.2008 - 17:49
Irena
Hæ öll,ég er endalaust oft í heimsókn, hlakka svo til að sjá myndir af nýja fjölskyldumeðliminum. Vonandi gengur allt vel.
Knús, Irena
25.02.2008 - 12:35
Inga Rún
Hæ hæ kæra fjölskylda og innilega aftur til hamingju með prinsessuna!Var að vona að það væru komnar inn einhverjar myndir ;-)
Hlakka til að sjá prinsessuna bráðum þegar þið eruð búin að jafna ykkur á þessu öllu saman!
Knús úr Hafnarfirðinum
24.02.2008 - 20:00
Eva, Ingibjörn og börn
Elsku fjölskylda, innilega til hamingju með stelpuna ykkar, get ekki beðið eftir að fá að sjá hana.. fæ mér göngutúr þegar þið eruð búin að koma ykkur vel fyrir heima.kv Eva
23.02.2008 - 19:55
Brynja og co
Elsku fjölskylda,Innilega til hamingju með prinsessuna oh hvað ég hlakka til að sjá myndir af henni. Ljóshærðu prinsessunni þetta er yndislegt.
kveðja frá Danaveldi,
Brynja og co.
23.02.2008 - 15:04
Jóanna frænka
Innilega til hamingju með litlu stelpuna. Ragnhildur og Eyvör komnar með frænku nánast á sama aldri :) Það verður stuð hjá okkur þegar við hittumst með 5 börn á þriggja ára aldursbili! Gangi ykkur vel.Knús, Jóanna og co.
22.02.2008 - 22:38
Irena
Kæra fjölskylda. Enn og aftur innilega til hamingju með prinsessuna.Knús,
Irena og fjölskylda.
22.02.2008 - 19:21
Ástrós frænka
Til hamingju með litlu systur elsku Óliver minn :) þú verður góður í þessu nýja hlutverki .. hlakka til að sjá ykkur við fyrsta tækifæri :)22.02.2008 - 12:13
Elna Ósk
Sæll flotti strákur!Þú ert svakalega flottur stór strákur, greinilega tilbúinn að verða stóri bróðir ;)
Gangi ykkur vel :)
18.02.2008 - 14:03
Helena
Hæ Olviver minn,Púff fékk prinsinn hlaupabólu vissi það ekki gott að þú ert búin að jafna þig. Flottar tannbursta myndirnar og þvíllíki krúsu karlinn heldur utan um pabba þinn þegar hann les fyrir þig ;-) bara sætt.
En hvað verður gaman fyrir þig að fá litli systir eða lítinn bróður. Bíð spennt eftir fréttum af krílinu og hugsa til ykkar.
Kv,
Helena
14.02.2008 - 23:23
Ástrós
æ greyið litla ekki gaman að vera veikur inni og geta ekkert farið út, kannast við það :/ vonandi klæjar þér ekkert voða mikið í bólurnar þínar .. Segðu svo mömmu þinni að slaka á í badmintoninu núna rétt áður en litla systkinið lítur dagsins ljós :)Það styttist í að þú verðir stóri bróðir, ég hlakka ekkert smá mikið til :)
06.02.2008 - 15:25
Irena
Sæll elsku kall. Mikið vildum við nú hafa þig hjá okkur um helgina. En vonandi verður þú fljótur að ná þér af veikindunum. Svo styttist í að þú verðir stóri bróðir.Knús, Irena
03.02.2008 - 21:31
Fanný
Gleðilegt nýtt ár! Sé að það hefur verið stuð hjá ykkur á gamlárs.Kv. Fanný
04.01.2008 - 13:50
Irena
Sæll vinur,takk fyrir góða sundferð í dag, duglegi sundstrákur. Til hamingju með Áslaugu frænku.
Knús, Irena
26.12.2007 - 23:27
Elna
Halló halló sæti strákur.Til hamingju með afmælið, greinilega hörkustuð alltaf í þínu afmæli.
Til hamingju með nýju íbúðina, vonandi að ykkur líði vel þar.
Kv. Elna
16.12.2007 - 04:02
Helena Óskarsd
Hæ hæ sæti Óliver Bill, mikið var gaman að hitta þig um daginn. Já mamma þín og pabbi eru ekkert smá dugleg að setja inn myndir enda nauðsynlegt að festa á filmu alla þessa skemmtilegu hluti sem þú ert að bralla :-)Kv,
Helena
14.12.2007 - 10:17
Elsa Nielsen
Vá hvað þú ert flottur strákur Óliver :) Gaman að skoða myndirnar...svakalega átt þú duglega mömmu (...eða er það pabbi?? ;)sem setur reglulega myndir inn á heimasíðuna þína! Tekur eflaust endalaust af myndum af þér því þú ert svo sætur!Knús - Elsa
19.10.2007 - 11:52
Brynja og co
Rosalega gaman að skoða myndir af þér Óliver það er nú meira hvað þú stækkar. Mamma má nú líka setja mynd af sér það er svo langt síðan ég hef séð hana...Gaman að fylgjast með ykkur alltaf jafn hress og fínn.
kv. frá Danaveldi já þú veist hvar við erum hihi
19.10.2007 - 08:45
Elna Ósk
Kvitt kvitt fyrir innlitið hjá þér. Ert rosa flottur stór stákur :)Kv. Elna Ósk og Dóra Sigrún
15.10.2007 - 10:03
Halldór Andri
Hæ hæ kære ven:)Mikið svakalegt stuð var í íþróttaskólanum og múttan þín algjör snilli í að vera með svona prógram fyrir litla íþróttaálfa:) Hlakka til að mæta næst
Knús:)
Halldór Andri og Mútta
26.09.2007 - 13:37
Irena
Hlakka til að fá þig í heimsókn á laugardaginn!Kv. Irena, Kristian Óskar og Halla Stella
30.08.2007 - 22:22
Ragnhildur ömmusystir
Gaman að sjá myndirnar hjá þér Óliver minn. Það hefur verið gaman í Færeyjum.Frænkurnar biðja að heilsa frá Köben.
14.08.2007 - 15:06
Fanný
Þetta hefur verið ansi frábær ferð til Föroyerne. Verð svo að kenna þér Mathilde kakaomælk lagið við tækfæri Óliver (hún er sko dönsk, ekki færeysk!) :)Kv. Fanný
11.08.2007 - 17:55
Irena
Hefur verið ansi góð og afslöppuð ferð í Færeyjum. Takk fyrir að deila þessum fallegu myndum.Kv. Irena
10.08.2007 - 09:22
Marta og Anton
Gaman að sjá myndirnar frá Stokkseyri Anton kannaðist við þetta var þar fyrr í sumar.bestu sumarkveðjur
02.08.2007 - 12:10
Ingibjörg
Hæ sæti moli:)Skemmtilegar myndir af þér á hestabaki og í flotta bílnum.
Bið að heilsa ma og pa - knus og kys:)
Ingibjörg og Halldór Andri
31.07.2007 - 10:39
Irena
Hæ, takk fyrir frábært garðpartý og frábæra fjölskylduferð. Ég pannt halda næsta garðpartý og fá alla fjörugu ormana og mömmurnar:)Kv.Irena
30.07.2007 - 23:47
Inga Rún
Hæ sæti!Ekkert smá flott klipping!! Mér fannst rosa gaman að koma í heimsókn til þín um daginn ;-)
Verðum að hittast fljótt aftur!!
Kveðja
Ingsa og co
20.07.2007 - 20:20
Fanný
Það hefur verið fjör á Snæfellsnesi. Finnst rólurnar í Hólminum æði, stefni á að prófa þær í næstu bústaðarferð.Kv. Fanný
20.07.2007 - 00:31
Elna Ósk
Kvitt kvitt fyrir innlitið í þetta sinn, þú ert svakalega flottur strákur!Kv. Elna Ósk
17.07.2007 - 21:18
Irena
Þetta er nú meiri ævintýragarðurinn sem þú átt. Nánast hægt að uppfylla alla drauma lítilla snáða! Ætli pabbi þinn verði svo ekki umboðsmaður þinn í framtíðinni, sýnist vera ansi efnilegur drengur á ferð:)Kv. Irena og co.
29.05.2007 - 23:39
Inga Rún
Hæ sæti!!!Flottar myndirnar af þér!!! Flottur vagninn sem Áslaug frænka lagaði og dró þig í!! Ekkert smá cool frænka!! Veit alveg um einn strák sem fyndist gaman að fá að prófa ;-) Við ætluðum að koma í heimsókn um helgina en þá var enginn heima :-( Reyni bara aftur fljótlega!!! Knús til ykkar
kveðja
Inga Rún
21.05.2007 - 10:12
Brynja og co
Vá hvað þú ert orðinn stór strákur Óliver. Rosalega gaman að skoða myndirnar af ykkur þið eruð svo dugleg að gera eitthvað saman. Dáist alveg að Íslandkökunni sem mamma þín bjó til snilldarbakari þar á ferð. Bið innilega að heilsa mömmsu.kær kveðja frá Danaveldi.
14.05.2007 - 07:46
Fanný
Þú ert nú meiri Bubba strákurinn. Var að reyna að vekja áhuga Daníels á Bubba um daginn en hann sofnaði bara! Vonandi sjáumst við svo fljótlega.Kv. Fanný
10.05.2007 - 21:44
Inga Magga
Hæ hæ stóri strákur. Mikið rosalega ertu orðin flottur - enda góð gen :) Sætar myndirnar af þér, skil vel að það er gott að vera í bíló undir borðinu, þá fær maður líka frið :) Bið að heilsa mömmu og farðu nú að segja henni að bjóða mér í kaffi ;) eða bara te.......08.05.2007 - 22:51
Elna Ósk og co
Alltaf nóg að gera hjá þér flotti strákur.Bið að heilsa mommsí.
Kv. Elna Ósk og co
07.05.2007 - 22:07
Ástrós
þú ert sætastur Óliver :) kem bráðum og kíkka á þig .. kem áður en ég fer til Köben að knúsa Agnesi frænku þína :) Það verður gaman þegar danirnir koma allir heim og þá geta þú og Agnes leikið saman oftar og strítt aðeins tvíbbunum :)06.05.2007 - 12:48
Ragga Dís
Langar að kvitta fyrir mig. Þú ert rosalega mikið krútt Ólíverkv. Ragga Dís
25.04.2007 - 11:41
Irena
Glæsikerra! Að sjálfsögðu Bubba byggir þríhjól. Ef ég fæ þig lánaðann aftur þá kemur þú með þríhjólið og við æfum okkur á pallinum!22.04.2007 - 15:37
Daníel Árni
Til hamingju með þríhjólið, ekkert smá flott!Fæ kannski að prófa það hjá þér þegar ég lengist um 10 cm og næ niður á petalana/gólfið :)
Kv. Daníel Árni
22.04.2007 - 15:31
Inga Rún
Hæ kæra fjölskylda og gleðilega páska!!!Alltaf jafn krúttilegar myndirnar af þér sætilíus :-)
Vonumst til að sjá ykkur á næstu helgi í afmælinu hans Arons!!!
Kveðja úr Firðinum
08.04.2007 - 16:29
Elna Ósk
Alltaf nóg að gera hjá þér sæti strákur, mamma og pabbi svvvo dugleg að setja inn nýja og nýjar myndir alltaf! Vona að ég verði svona dugleg líka!Hilsen Elna
02.04.2007 - 10:23
Irena
Til hamingju með mömmu þína, ótrúlega dugleg!Kv. Irena
02.04.2007 - 00:08
Fanný og Daníel Árni
Gott að sjá að þú fílar endurnar, þær eru líka uppáhaldið hans Daníels. Spurning um að kíkja á þær saman einhvern daginn og fá sér svo kleinu á kaffihúsi :)Kv. Fanný og Daníel Árni
15.03.2007 - 21:07
Ragnhildur ömmusystir
F.Flottar myndir hjá mömmu og pabba. Það er alltaf nóg að gera hjá þér litli frændi.
12.03.2007 - 18:20
Irena
Það vantar aldrei stemninguna á þitt heimili Óliver. Mikið er vel hugsað um prinsinn, þú hefur það greinilega mjög gott.Knús, Irena og co.
23.02.2007 - 12:26
Brynja og co
Rosalega er gaman að skoða myndirnar af þér og ykkur. Gott að mamma þín er búin að minnka við sig og eyða meiri tíma með gullmolanum sínum. Ætlar þú svo ekki að plata mömmu og pabba hingað aftur í sumar???? Það væri nú gaman.Kær kveðja frá Danaveldi
20.02.2007 - 17:22
Elna Ósk
Þú ert svakalega flottur strákur! Bið kærlega að heilsa múttu þinni!Kv. Elna Ósk og væntanlegi marsbúinn :)
18.02.2007 - 10:30
Irena
Sæll litli prins. Það er mikið þér að þakka að BH-ingar voru Íslandsmeistarar, stóðst þig svo rosalega vel á BONGÓ-trommunum í TBR um helgina:) Hafðu það gott með mömmu og pabba í dag.Knús, Irena og Kristian
05.02.2007 - 09:33
Júlíus Aron og mamma
Hæ Óliver gæi..og gleðilegt árið..þú ert algjör töffari og ofsalega er skemmtilegt að skoða fínu myndirnar þínar..kveðja frá Viborg Júlíus Aron og mamma(Ólöf)29.01.2007 - 10:27
Fanný
Hæ snúlli. Vonandi ertu búinn að jafna þig í auganu og að þessari veikindatörn fari að ljúka hjá þér.Verðum svo að fara að hittast, nú er Daníel orðinn aðeins skemmtilegri að leika við :)
Knús, Fanný og Daníel Árni.
26.01.2007 - 22:33
Ástrós frænka
hæ litli snúðurinn minn .. það á ekki af þér að ganga í veikindunum, en vonandi verður í lagi með augað bráðum :) en gott að þér líður vel með steikarspaðann hehe frekar fyndið :)Verð að koma bráðum til þín og knúsa þig .. bið að heilsa mömmu þinni og pabba
26.01.2007 - 16:43
Irena
Sæll elsku prins. Þú verður að plata mömmu þína oftar í heimsókn til okkar. Mikið var gaman að fá þig, svo duglegur að leika við stóru strákana. Næst kemur þú og við fáum að setja ykkur prinsana í bað saman.Knús, Irena og Kristian
03.01.2007 - 20:38
Elna Ósk
Til hamingju með afmælið flottir strákur og gleðilega jól! Vonandi að þið hafið það sem allra best yfir hátíðina :) Jólakveðja Elna Óak27.12.2006 - 15:20
Irena
Sæll litli prins og gleðilega hátíð. Knúsaðu foreldra þína frá okkur fjölskyldunni að Lindasmára.Kv. Irena
26.12.2006 - 21:02
Inga Magga
Hæ hæ sæta fjölskylda. Rosalega hefur verið gaman í afmælinu þínu :) Til hamingju með afmælið um daginn og gleðileg jól. Takk fyrir sætu myndina sem þið senduð mér af þér - þú ert algjör prins. Sjáumst vonandi sem mest á því herrans ári 2007. Jólaknús til ykkar allra. Kveðja, Inga Magga26.12.2006 - 11:52
Daníel Árni
Hæ vinur.Fannst þér ekki gaman að pökkunum á aðfangadag? Ég var gjörsamlega að missa mig yfir öllum þessum krulluböndum, ekkert smá mikið stuð að toga í þau! Flottar nýju myndirnar, sérstaklega þessar af okkur :) Kv. Danni og mútta
26.12.2006 - 11:28
Agnes frænka í Danmörku
Hæhæ litli frændi minn.. þú ert svo sætur ég get ekki beðið eftir að sjá þig næst :) segðu mömmu þinni að drífa sig að setja inn nýjar myndir svo ég geti séð hvað þú ert orðinn stór ..Ég sit hér og leik mér við fullt af böngsum í pössun hjá ömmu, Dóra frænda og ástrós frænku .. það er rosa gaman :)
kv. frá köben
Agnes stóra frænka
26.12.2006 - 10:44
Irena og Kristian Óskar
Takk fyrir æðislega skemmtilegt íþróttaafmæli.05.12.2006 - 21:10
Brynja og co
Ég verð nú að óska ykkur mæginunum innilega til hamingju með afmælin. Mömmunni 22.nóv og þér Óliver 28.nóv bara bestu óskir frá okkur í Árósum. Alveg ótrúlegt hvað tíminn líður.Bið að heilsa.
kv. frá Danaveldi.
30.11.2006 - 13:51
Halldór Andri og mútta
Hæ hæ óliver :) Innilegar hamingjuóskir með daginn í gær.Hlökkum massa til að sjá þig í íþróttaafmælinu;)
Knús
Halldór Andri og Ingibjörg
29.11.2006 - 22:05
Ástrós
Til hamingju með 1 árs afmælið þitt Óliver minn. Vonandi var dagurinn skemmtilegur :) Hlakka til að sjá þig á laugardaginn í afmælinu28.11.2006 - 21:42
Fanný
Til hamingju með afmælið litla krútt! Hlökkum til að sjá þig hlaupa um á laugardaginn :)Knús úr vesturbænum.
28.11.2006 - 09:58
Inga Rún
HANN Á AFMÆLI Í DAG, HANN Á AFMÆLI Í DAG, HANN Á AFMÆLI HANN ÓLIVER, HANN Á AFMÆLI Í DAG,VEIIIIII!! Til hamingju með afmælið snúlli:-)Ég hlakka alveg rosalega til að koma í afmælið til þín um helgina og Aron getur heldur ekki beðið, hann er rosa spenntur að gefa þér pakka :-)
Knús og þúsund kossar
kveðja
Ingsa
28.11.2006 - 08:54
Inga Magga
Hæ hæ sæti prins. Rosalega ertu orðin flottur strákur. Viltu knúsa mömmu einn stórann afmælisknús frá mér??? :) Til hamingju með afmælið Anna Lilja mín. Knús til þín.22.11.2006 - 23:59
Ástrós frænka
hæhæ Óliver sæti frændi minnÞað er alltof langt síðan ég sá þig síðast .. ég þarf að koma og knúsa þig bráðum og gef þér afmæliskoss í leiðinni því það fer senn að líða að því að stóri strákurinn verði eins árs :) vá hvað tíminn er fljótur að líða :)
Til hamingju með afmælið í dag Anna Lilja mín .. vonandi eigið þið fjölskyldan góða kvöldstund :)
Sjáumst sem fyrst
Knús
Rósa frænka
22.11.2006 - 20:26
Inga Rún og co
Hæ hæ Óliver!Til hamingju með mömmuna þína í dag!! Djö er hún orðin gömul kellan ,híhí :-)
Hlakka rosalega til að sjá þig í afmælinu þínu!!!!
Knúsaðu og kysstu mömmu þína frá mér!!
kveðja
Inga Rún og co
22.11.2006 - 09:00
Fanný
Hæ hæ Óliver Bill.Til hamingju með fyrstu sjálfstæðu skrefin! Þú getur kannski kennt Daníeli hvernig á að gera þetta eftir áramótin :)
Kv. Fanný
12.11.2006 - 13:10
Irena
Sæll litli grallari,Takk fyrir sundferðina um daginn. Mikið ertu duglegur, farinn að labba og ekki orðinn eins árs.
Knús, Irena og co
06.11.2006 - 11:47
Inga Rún
Hæ hæ lilli mús!!!Til hamingju með að vera byrjaður að labba!! Ekkert smá duglegur:-) Nú fer líka heldur betur að styttast í fyrsta afmælið!! Vá hvað tíminn er fljótur að líða,úff!!
Bið að heilsa múttu og patta!
knús og kveðja
Inga Rún
06.11.2006 - 09:02
Óliver Bill
Takk fyrir allar skemmtilegu kveðjurnar í gestabókina mína.Finnsi frændi setti hana nú bara inn fyrir stuttu, það er skýringin á því að þið hafið ekki séð hana fyrr :)
Knús
Óliver Bill
09.10.2006 - 21:20
Unnur Ylfa og Andri Þór
Ég trúi því ekki að ég sé að taka eftir gestabókinni fyrst núna. Við fylgjumst alltaf vel með og kíkjum á myndirnar þær eru svo skemmtilegar og þú Óliver Bill ert alveg lang flottastur.Kveðja,
Unnur Ylfa og Andri Þór
09.10.2006 - 17:12
Brynja og co
Oh alltaf gaman að skoða myndir af þér. Líka gott að mamma sendi póst því ég er búin að fara endalaust hingað inn og athuga hvort nýjar myndir væru.Við skoðum sko pottþétt dádýrin næst þegar þú kemur í heimsókn og gefum þeim epli. Brynjar og María eru komin í æfingu þar sem dádýrin eru svo frek að það verður bara að henda þeim á jörðina það segir Brynjar allavega.
haltu áfram að vera svona duglegur.
Biðjum að heilsa mömmu og pabba.
kv. Brynja og co frá Árósum.
05.10.2006 - 09:53
Ingibjörg Ásta
Hæ hæ sætiGaman að sjá þig í matarboðinu á sunnudaginn. Þú ert meiri snúllinn:)
Vonandi ferðu að ná pestinni úr þér sem fyrst:)
kv.Ingibjörg og Halldór Andri
04.10.2006 - 10:54
Hildur frænka
Halló Óliver, við vorum fyrst að átta okkur á þessari gestabók núna! Mikið er gaman að sjá myndirnar af þér, og mikið ertu orðinn stór og sætur strákur. Við hlökkum ægilega til að sjá ykkur öll, nú eru bara nokkrar vikur þangað til við komum heim. Ástarkveðjur til pabba og mömmu og allra hinna,Knus og kram frá Hildi, Gumma og Siggu
04.10.2006 - 09:03
Inga Magga
Hæ hæ sæta fjölskylda. Mikið rosalega ertu orðin stór Óliver...... og altaf jafn sætur með bláu augun þín :) Ég var að skoða myndir úr 10.mánuði, og mamma þín tekur sig vel út með tvö kríli í fanginu, eins og hún hafi aldrei gert annað :) knús til ykkar28.09.2006 - 20:01
Fanný
Hæ hæ Óliver Bill.Alltaf jafn gaman að skoða nýjust uppátækin þín.
Kveðja úr vesturbænum.
17.09.2006 - 09:51
Afi Bill
Halló maður mikið ertu flottur í gröfunni hjá Sigga afa ég er búinn að prenta út myndina og hengja hana upp í vinnunni hjá mér, sjáumst um helgina.ps vona að strákrnir hans pabba þíns vinnu leikinn um helgina.
Kveðja frá Bill afa
15.09.2006 - 13:39
Eva. Kristófer og Sara
Hæhæ flotta fjölskylda, gaman að kíkja á ykkur, Oliver alltaf jafn myndarlegur og flottur :-) Kærar kveðjur frá Kagsaa15.09.2006 - 08:33
Ástrós frænka
Rosa fínar nýju myndirnar. Þú ert lang sætastur Óliver :)Hlakka til að fá að knúsa þig bráðum :)
Kv. Rósa frænka
12.09.2006 - 09:54
Inga Rún
Hæ sætilíus!Það eru svo sætar nýju myndirnar af þér ,eins og alltaf!! Óborganleg spagettímyndin!! Senda hana í einhverja ljósmyndasamkeppni bara,hehe! Hlakka til að sjá þig bráðum, ég þarf nú að prufukeyra nýja bílinn þinn hehe-eða kannski ég láti Aron Birgi bara um það!
Kærlig hilsen
Ingsa
04.09.2006 - 09:09
Joanna frænka
Þú ert nú meira krúttið Óliver litli, verst að ég fæ alltof sjaldan að knúsa þig! Gaman að geta fylgst með þér hérna á síðunni. Bið að heilsa múttu og pápa og hlakka til að sjá ykkur næst.Knús, Joanna frænka
03.09.2006 - 19:51
Irena
Hæ elsku prins, mikið er langt síðan ég hef séð þig. Ótrúlega flottur bíll sem þú varst að fá. Það líður ekki á löngu þar til þú ferð að keyra út um allt á honum.Knús, Irena
31.08.2006 - 09:58
Brynja og co
Hæ Olíver vá hvað það er gaman að skoða myndirnar af þér. Ég var sko farin að bíða eftir fleiri myndum af ykkur. Það er svo gaman að fylgjast með ykkur.kveðja frá öllum í Árósum.
30.08.2006 - 09:42
Brynjar Már og María Rún
Hæ elsku Olíver, rosalega var gaman að fá þig í heimsókn til okkar. Vonandi kemur þú með mömmu og pabba í ferð til Árósar þið eruð alltaf velkomin til okkar.kv. Brynjar og María
16.08.2006 - 18:05
Ólöf Ólafsdóttir og co.
Sælt veri fólkið..gaman að skoða myndirnar ykkar og greinilega mikill myndarpiltur hér á ferð..gangi ykkur allt í haginn..bestu kveðjur frá Viborg..Ólöf Guðrún og Júlíus Aron...15.08.2006 - 21:24
Erla og Elvar Már
Hæ sæti strákur. Rosalega ertu orðin stór og myndarlegur. Biðjum að heilsa m og p.Kv,
Erla og Elvar Már
14.08.2006 - 19:31
Imba
Hæ hó. Það vantar ekki stuðið á þennan bæinn. Ekkert smá duglegur strákur sem þið eigið og myndarlegur eins og foreldrarnir. Fylgjumst reglulega með ykkur, kveðja af Skaganum frá Imbu, Jón Þór og Þórði Frey09.08.2006 - 21:14
Irena
Sæll sæti!Takk fyrir frábært ferðalag. Það var mjög gaman að ferðast með þér og fjölskyldunni. Þú ert mjög góður ferðafélagi. Duglegur strákur.
Kristian er óður í að fá að skrifa þér nokkur vel valin orð: hbdd 'hjh'kjgrfvgnmoiu'íu
Kveðja,
Irena
08.08.2006 - 08:05
Inga Rún
Hæ snúlli!Alltaf gaman að kíkja á myndir af þér sætimús! Mamma greinilega rosa dugleg að setja inn nýjar myndir. Vonandi sjáumst við svo fljótlega-það var rosa gaman að fara með þér í sund um daginn!! Verðum endilega að endurtaka það!
Knús Inga Rún (frænka) og Aron Birgir sundfélagi,hehe
03.08.2006 - 11:27
Ástrós frænka
hæhæ litli sæti frændi minn sem er samt svo stór :) ég kíki hér reglulega og gaman að sjá hvað mamma þín og pabbi eru dugleg að setja inn myndir .. hlakka til að sjá þig næst alltaf gott að koma og knúsa litla frænda reglulega :)27.07.2006 - 08:31